Fréttabréf U3A Reykjavík í desember 2023

Við vekjum athygli á að desemberfréttabréf  U3A Reykjavík er nú komið út og hefur verið sent áskrifendum. Þar er sem fyrr að finna áhugaverðar og skemmtilegar greinar um málefni eldra fólks.

Efni desemberbréfsins er:

  • Jólakveðja frá U3A Reykjavík
  • Jólin koma hraðar og hraðar …
  • Að skilja vel við
  • Hann Þórður ætlar að ganga í endurnýjun lífdaga!
  • Á Sturlungaslóð
  • Vasahandbók bænda
  • Viðburðir U3A Reykjavík í desember 2023

Fréttabréfið má lesa hér:

Fréttabréf U3A Reykjavík desember 2023 

Njótið!

Næsta fréttabréf kemur svo út þriðjudaginn 9. janúar 20124, en hægt er að skoða fyrri fréttabréf á vef vöruhússins og gerast áskrifandi hér.

Sérstakur ritstjórnarhópur U3A félaga sér um útgáfu Fréttabréfsins. Fréttabréfinu ætlað að vera vettvangur fræðslu og upplýsinga um málefni fólks á þriðja æviskeiðinu með virkni í fókus. Þar verða birtir fjölbreyttir pistlar og greinar um mál sem varða eldra fólk og tækifæri sem standa þeim til boða þeim, jafnt fyrir sem eftir að hefðbundnu starfi lýkur. Þá mun Fréttabréfið birta pistla um þróun mála eldri borgara innanlands sem erlendis. Félagar U3A Reykjavík eru hvattir til  að koma með tillögur um umfjöllunarefni. Ritstjóri Fréttabréfsins er Hjördís Hendriksdóttir, hjordis.hendriks@outlook.com og aðrir í ritstjórn eru þau Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, Hans Kristján Guðmundsson, Jón Ragnar Höskuldsson og Viðar Eggertsson.

Með kveðjum frá ritstjórn

Scroll to Top
Skip to content