SKILMÁLAR

Velkomin á vefsíðu U3A.is sem er í eigu og rekstri félagasamtakanna U3A Reykjavík. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við u3a.is.

Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú skráir þig sem félaga og notanda að vefsíðunni. Með því að nota vef félagasamtakanna u3a.is samþykkir þú þessa skilmála.

U3A Reykjavík
Kennitala: 430412-0430
Bankareikningur: 0323-26-043412
Netfang: u3areykjavik@gmail.com

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar þú skráir þig sem félaga þarftu að gefa upp nafn, kennitölu, netfang og símanúmer. Þessar upplýsingar eru eingöngu geymdar í félagaskrá U3A til að tryggja samskipti milli félagsins og félagsmanna. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

Öflun persónuupplýsinga
U3A heldur til haga perónugreinanlegum upplýsingum svo sem tölvupóstfangi, nafni, heimilisfangi og símanúmeri.
Upplýsingum um tölvu- og hugbúnað er sömuleiðis sjálfkrafa safnað saman af U3A. Þessar upplýsingar geta til að mynda verið IP-tala tölvunnar þinnar, upplýsingar um tegund vafra sem þú notar, lén sem eru heimsótt, hvenær þau eru heimsótt og viðeigandi vefföng. Þessar upplýsingar notar U3A í þeim tilgangi að veita góða þjónustu og til að afla almennra tölfræðilegra upplýsinga um notkun U3A vefsíðunnar.

Vinsamlegast hafðu í huga að ef þú lætur af hendi perónulegar upplýsingar eða mikilvæg gögn í gegnum almenn skilaboðasvæði U3A þá geta þessar upplýsingar verið notaðar af þriðja aðila. Ath: U3A les ekki persónuleg samskipti sem fara fram á vefnum

U3A hvetur þig til að skoða hvernig meðferð persónupplýsinga er háttað hjá þeim vefsíðum sem þú kýst að krækja á U3A. Þannig getur þú fylgst með því hvernig þær vefsíður afla, nota og deila upplýsingum þínum. U3A er ekki ábyrgt fyrir meðferð persónuupplýsinga á þeim síðum sem ekki eru beinir aðilar að U3A og U3A netkerfinu né á nokkru því efni sem þar er að finna.

Notkun persónuupplýsinga
U3A heldur til haga og notar persónuupplýsingar þínar til að starfrækja U3A heimasíðuna og halda úti þeirri þjónustu sem þar er boðið uppá. Þá gæti U3A einnig sett sig í samband við þig til að kanna viðhorf þitt til núverandi eða tilvonandi þjónustumöguleika á heimasíðunni.

U3A hvorki selur, leigir né gefur út viðskiptavinaskrár til þriðja aðila. Svo gæti farið að U3A setji sig í samband við þig annað veifið fyrir hönd utanaðkomandi aðila vegna einstakra tilboða sem við teljum að gætu vakið áhuga þinn. Í slíkum tilfellum eru persónuupplýsingar (tölvupóstfang, nafn, heimilisfang, símanúmer) ekki afhentar þriðja aðila. Að auki gæti svo farið að U3A deili gögnum með áræðanlegum aðilum til að fá aðstoð við tölfræðilegar greiningar eða til að senda þér tölvupóst eða almennan póst. Öllum slíkum aðilum er hins vegar óheimilt að nýta persónuupplýsingar úr fórum U3A til eigin nota og af þeim er krafist að þeir fari með persónuupplýsingar sem slíkar.

U3A hvorki notar né gefur upp viðkvæmar persónuupplýsingar svo sem um kynþátt, trúarbrögð eða stjórnmálaþáttöku án afdráttarlauss samþykkis hlutaðeigandi.

U3A fylgist með því hvaða vefsíður viðskiptavinir okkar heimsækja innan U3A-netsins til að kynna sér hvaða upplýsingar sem U3A býður uppá eru vinsælastar hverju sinni.

U3A vefsíður munu þá aðeins gefa upp persónuupplýsingar þínar viðvörunarlaust að þess sé krafist af löggiltum aðilum eða í þeirri trú að slíkt sé nauðsynlegt til að verja einkaeignarétt U3A eða tryggja persónuegt öryggi notenda eða annarra borgara. Slík afhending upplýsinga verður þó alltaf að vera í fullu samræmi við lög eða þá löglegu ferla sem U3A einsetur sé að fara eftir.

2. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar upplýsingar séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu.

Gamlir vafrar geta verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota. Gamlir vafrarar geta einnig komið í veg fyrir þægileg, einföld og örugg samskipti með því að “tala” ekki beint við vefsvæðið.

Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna ofangreindra skilmála skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.

Við hlökkum til að eiga skemmtileg og einlæg samskipti við þig.

U3A Reykjavík

Scroll to Top
Skip to content