Fréttabréf U3A Reykjavík í júní 2024

Við vekjum athygli á að júnífréttabréf  U3A Reykjavík er nú komið út og hefur verið sent áskrifendum. Þar er sem fyrr að finna áhugaverðar og skemmtilegar greinar um málefni eldra fólks.

Efni júníbréfsins er:

  • Vorkveðja frá stjórn U3A Reykjavík
  • Fréttir frá Tuma
  • Brennur fyrir hagsmunum félaga LEB
  • Hugarsmíðar á þriðja æviskeiðinu – Stella rokkar
  • Vetrarkartöflusalat frá Íkaríu
  • Viðburðir U3A framundan

Fréttabréfið má lesa hér:

Fréttabréf U3A Reykjavík í júní 2024 

Njótið!

Starf U3A liggur niðri yfir sumarmánuðina. Ritstjórn Fréttabréfsins fer einnig í sumarfrí og næsta fréttabréf kemur  út þriðjudaginn 3. september.  Sú breyting verður á að einungis skráðir félagsmenn U3A munu fá Fréttabréfið sent til sín í tölvupósti. Þau sem vilja gerast félagar og fá aðgang að öllum viðburðum U3A  geta skráð sig á https://u3a.is/felagaskra/
Fréttabréfið verður aðgengilegt öllum á vefsíðu U3A.is  og hægt er að skoða fyrri fréttabréf hér

 

Í tilraunaskyni er nú hægt að skoða fréttabréfið sjálfvirkt vélþýtt á ensku, pólsku, litháísku, spænsku og úkraínsku. Fyrirvari er gerður á hugsanlegri brenglun texta í vélþýðingunni.

Sérstakur ritstjórnarhópur U3A félaga sér um útgáfu Fréttabréfsins. Því er ætlað að vera vettvangur fræðslu og upplýsinga um málefni fólks á þriðja æviskeiðinu með virkni í fókus. Þar verða birtir fjölbreyttir pistlar og greinar um mál sem varða eldra fólk og tækifæri sem standa þeim til boða, jafnt fyrir sem eftir að hefðbundnu starfi lýkur. Þá mun Fréttabréfið birta pistla um þróun mála eldri borgara innanlands sem erlendis. Félagar U3A Reykjavík eru hvattir til að koma með tillögur um umfjöllunarefni. Ritstjóri Fréttabréfsins er Hjördís Hendriksdóttir, hjordis.hendriks@outlook.com og aðrir í ritstjórn eru þau Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, Hans Kristján Guðmundsson, Jón Ragnar Höskuldsson og Viðar Eggertsson.

Með kveðjum frá ritstjórn

Scroll to Top
Skip to content