Fréttabréf U3A Reykjavík í mars 2024

Fréttabréf mars 2024 einkennismynd

Við vekjum athygli á að marsfréttabréf  U3A Reykjavík er nú komið út og hefur verið sent áskrifendum. Þar er sem fyrr að finna áhugaverðar og skemmtilegar greinar um málefni eldra fólks.

Efni marsbréfsins er:

  • Að lifa lengi og vel
  • Grafðu þar sem þú stendur
  • Lífsháski eða listin að lifa. Hvort viltu?
  • Þetta reddast
  • Ný upplýsingagátt fyrir eldra fólk
  • Viðburðir U3A Reykjavík í mars 2024

Fréttabréfið má lesa hér:

Fréttabréf U3A Reykjavík í mars 2024 

Njótið!

Næsta fréttabréf kemur svo út þriðjudaginn 2. apríl 2024, en hægt er að skoða fyrri fréttabréf á vef vöruhússins og gerast áskrifandi hér.

Í tilraunaskyni er nú hægt að skoða fréttabréfið vélþýtt á ensku, pólsku, litháísku, spænsku og úkraínsku. Fyrirvari er gerður á hugsanlegri brenglun texta í vélþýðingunni

Sérstakur ritstjórnarhópur U3A félaga sér um útgáfu Fréttabréfsins. Því er ætlað að vera vettvangur fræðslu og upplýsinga um málefni fólks á þriðja æviskeiðinu með virkni í fókus. Þar verða birtir fjölbreyttir pistlarog greinar um mál sem varða eldra og tækifæri sem standa þeim til boða, jafnt fyrir sem eftir að hefðbundnu starfi lýkur. Þá mun Fréttabréfið birta pistla um þróun mála eldri borgara innanlands sem erlendis. Félagar U3A Reykjavík eru hvattir til að koma með tillögur um umfjöllunarefni. Ritstjóri Fréttabréfsins er Hjördís Hendriksdóttir, hjordis.hendriks@outlook.com og aðrir í ritstjórn eru þau Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, Hans Kristján Guðmundsson, Jón Ragnar Höskuldsson og Viðar Eggertsson.

Með kveðjum frá ritstjórn

Scroll to Top
Skip to content