Fjölsóttur félagsfundur U3A Reykjavík

Félagsfundur 2022-09-06

Vel var mætt á félagsfundinn 6. september. Glaðlegur hópur félagsfólks hlýddi á kynningu á félaginu og Vöruhúsinu. Eftir kynningarnar var farið í umræður og fundarfólk setti fram sínar hugmyndir um viðburði og fyrirlestra. Þannig verður til hugmyndalisti sem stjórnin vinnur síðan með og hrindir í framkvæmd eins og kostur er.

Meðal þess sem kom fram voru eftirfarandi hugmyndir:

  • Skiptinemar milli Vesturheims og Íslands segi frá reynslu sinni
  • Erindi um áhrif tónlistar á fólk
  • Stríðið í Úkraínu – gjarnan fleiri en eitt erindi (höfðar til karla!)
  • Saga Reykjaneselda – Þorvaldur Þórðarson
  • Erindi um norðurljósin (+ ferð)
  • Hótel Holt – leiðsögn og skoðun listaverka
  • Hópferð á tónleika eða leikhús
  • Stuttar ferðir/gönguferðir í nærumhverfinu

Stjórnin hefur því úr nægu að moða þegar skipuleggja á komandi viðburði. Vakin er athygli á  að einnig má senda stjórninni hugmyndir á fésbókarsíðu félagsins .

Kærar þakkir fyrir ykkar framlag

Stjórn U3A Reykjavík

Scroll to Top
Skip to content