Skýrsla stjórnar 2025-2026

Skýrsla stjórnar U3A Reykjavík
starfsárið 2025 – 2026

Lögð fram á aðalfundi samtakanna 24. mars 2026

Skýrsla stjórnar - Samantekt

Skýrsluna í heild sinni er hægt að nálgast sem PDF-skjal hér að ofan.

Stjórn og stjórnarstarf

Á aðalfundi 25. mars 2025 var Hjördís Hendriksdóttir endurkjörin formaður til eins árs. Þórleif Drífa Jónsdóttir og Birna Sigurjónsdóttir voru endurkjörnar til tveggja ára. Einar Sveinn Árnason, Stefanía Traustadóttir og Vigdís Pálsdóttir, sem voru kosin 2024 til tveggja ára, héldu áfram störfum. Jón Ragnar Höskuldsson var kosinn til tveggja ára.

Stjórn skipti með sér hlutverkum fyrir starfsárið 2025-2026:

  • Birna Sigurjónsdóttir: varaformaður
  • Stefanía Traustadóttir: ritari
  • Jón Ragnar Höskuldsson: gjaldkeri
  • Einar Sveinn Árnason, Þórleif Drífa Jónsdóttir og Vigdís Pálsdóttir: meðstjórnendur

Stjórnin hélt 12 fundi á starfsárinu og vann í sjálfboðavinnu samkvæmt starfslýsingu. Á fundum var fjallað um starfsemi samtakanna, eflingu þeirra, skipulag viðburða, miðlun upplýsinga, viðhald heimasíðu, fjárhag og samstarf.

Fjármál

Fjárhagsár samtakanna er almanaksárið. Ársreikningur fyrir 2025 var lagður fram á aðalfundi 24. mars 2026.

  • Eigið fé í lok árs 2025: 16.042.842 kr.
  • Rekstrarafkoma ársins: 2.472.725 kr.
  • Tekjur samtals: 4.853.187 kr. (þar af félagsgjöld 3.902.660 kr.)
  • Útgjöld samtals: 2.380.462 kr.

Skoðunarmenn reikninga eru Lilja Ólafsdóttir og Gylfi Þór Einarsson, með Þórleif Jónsson til vara. Í eignastöðu er innifalinn styrkur frá Félags- og vinnumarkaðsráðuneyti frá 2023 og innstæður frá Vöruhúsi tækifæranna, samtals um 4 milljónir króna, sem verða nýttar fyrir starfsemina.

Félagar

Í lok árs 2025 voru félagar tæplega 1500. Um 47% félaga eru á aldrinum 65-74 ára. Konur eru í meirihluta, eða um 78% félaga. Konum fjölgar mest um 65 ára aldur en karlar virðast koma seinna inn í félagið, eða eftir sjötugt.

Rafræn miðlun U3A Reykjavík


Vefsíðan www.u3a.is er aðal upplýsingaveitan. Þar eru fréttir, auglýsingar um viðburði og upplýsingar um hópastarf. Félagsmenn fá auglýsingar í tölvupósti og mánaðarlegt rafrænt Fréttabréf er sent á alla félagsmenn. Einnig er notuð opin Facebook-síða. Öll samskipti eru rafræn.

Starfið á vettvangi U3A 2025-2026


Starfið hefur verið blómlegt með mikilli þátttöku. Alls voru 52 viðburðir á starfsárinu, þar af 29 fyrirlestrar. Fræðslufundir á þriðjudögum eru kjarni starfseminnar. Fyrirlestrum er streymt og upptökur eru aðgengilegar í 30 daga. Að meðaltali hafa um 170 félagar fylgst með hverjum fyrirlestri.

Hópastarf

Fimm virkir hópar eru starfandi:

  • Bókmenntahópur: Hittist á þriggja vikna fresti til að ræða um bækur. Umsjón: Ásdís Skúladóttir.
  • Menningarhópur: Efnir til heimsókna í leikhús, tónleika, söfn og ferða. Skipuleggur viðburði mánaðarlega. Á starfsárinu var farið í heimsóknir, leikhús, kvikmyndasýningu og ferð til Færeyja. Umsjón: Menningarnefnd.
  • Umhverfishópur: Fræðir um umhverfismál og hvetur til aðgerða. Skipulagði tvo fyrirlestra og hyggur á samstarf við samtökin Aldin. Umsjón: Stýrihópur.
  • Ferðahópur: Stofnaður til að skipuleggja fræðandi ferðir. Fyrsta ferðin verður til strandbæja við Eystrasaltið vorið 2026 í samstarfi við Bændaferðir. Umsjón: Ferðanefnd.
  • Ritstjórn: Sér um útgáfu Fréttabréfs U3A, sem er vettvangur fræðslu og upplýsinga um málefni fólks á þriðja æviskeiðinu. Ritstjóri: Hjördís Hendriksdóttir.
Námsskeið

Í október 2025 voru haldin þrjú stutt og fullsetin námskeið um gervigreind og spjallbotta fyrir byrjendur, undir stjórn Jóns Ragnars Höskuldssonar og Einars Sveins Árnasonar. Jón Björnsson hélt einnig námskeið um Engla. Stefnt er að því að efla námskeiðahald.

Innlend samskipti – Kynningarstarf

U3A Reykjavík er hluti af eftirfarandi tengslaneti og samtökum:

  • Tengslanet Fjölmiðlanefndar TUMA: Til að auðvelda upplýsingaskipti og samstarf um miðlalæsi. Fulltrúi: Guðrún Bjarnadóttir.
  • Almannaheill: Samtök þriðja geirans sem vinna að hagsmunamálum almannaheillasamtaka.
  • Öldungaráð Reykjavíkurborgar: Er borgaryfirvöldum til ráðgjafar um málefni eldri borgara. Fulltrúi: Viðar Eggertsson (Birna Sigurjónsdóttir til vara).
Erlend samskipti

 

  • AIUTA (International Association of Universities of the Third Age): U3A Reykjavík er aðili að þessum alþjóðasamtökum. Stefanía Traustadóttir sótti ráðstefnu samtakanna í Prag í október 2025.
  • Pass It On Network (PION): Virkt tengslanet sem miðlar hugmyndum og upplýsingum um málefni efri áranna. Hans Kristján Guðmundsson er tengiliður fyrir Ísland.
Starfið framundan

Félögum hefur fjölgað og eru nú tæplega 1.500. Haldið verður áfram að streyma fyrirlestrum og gera þá aðgengilega. LEB, landssamtök eldri borgara, hefur áfram aðgang að upptökum til sýninga utan höfuðborgarsvæðisins. U3A mun halda áfram að þróast sem vettvangur fræðslu, upplýsinga, þekkingar og virkni hugans.

Að lokum


Stjórn þakkar framlag félagsmanna og annarra sjálfboðaliða. Sérstakar þakkir eru færðar aðstandendum félagsmiðstöðvarinnar í Hæðargarði 31 fyrir aðstöðu og hlýtt viðmót.

Scroll to Top
Skip to content