Fundargerð aðalfundar U3A Reykjavík
24. mars 2026 kl. 16:30
Hæðargarði 31
Mæting: Mættir voru 35 félagar.
Fundargerðin sem PDF-skjal
1. Setning fundar
Formaður Hjördís Hendriksdóttir, setti fund og bauð fundargesti velkomna.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
Formaður gerði tillögu um fundarstjóra Lilju Ólafsdóttir og fundarritara Emmu Eyþórsdóttur Tillaga formanns samþykkt samhljóða.
3. Skýrsla stjórnar
Formaður gerði grein fyrir skýrslu stjórnar. Skýrslan verður birt á heimasíðu U3A. Ekki verður orðlengt um skýrsluna í fundargerð en nokkur atriði talin upp.
- Stjórn fundaði 13 sinnum á starfsárinu.
- Fjöldi félaga í U3A var tæplega 1500 í lok árs 2025 sem er svipað og árið áður. Sem fyrr eru konur í miklum meirihluta.
- Haldin voru 29 þriðjudagserindi og nær öllum streymt á netinu.
- Bókmenntahópur kemur saman reglulega.
- Menningarhópur stóð fyrir 9 viðburðum sem voru mjög vel sóttir.
- Umhverfishópur hefur verið virkur og stóð fyrir tveimur fundum/ráðstefnum.
- Ferðahópur var stofnaður á árinu.
- Fréttabréf kom út 10 sinnum, sent með tölvupósti til félagsmanna og birt á vefsíðu
- Kynningarstarf innanlands felst í fréttabréfi og virkri heimasíðu ásamt Facebook síðu.
- U3A á fulltrúa í öldungaráði Reykjavíkur og er aðili að Samtökum um Almannaheill.
- Félagið er aðili að alþjóðasamtökum U3A
Starfið framundan verður með svipuðu móti og verið hefur, með áherslu á virkni félaga.
Að lokum þakkaði formaður öllum sem lagt hafa hönd á plóg og haldið starfinu gangandi. Öll sú vinna er unnin í sjálfboðastarfi. Einnig þakkaði hún húsráðendum að Hæðargarði 31 fyrir ákaflega gott samstarf. Hjördís gengur úr stjórn U3A á þessum fundi og hún þakkaði sérstaklega gott samstarf við stjórn á undanförnum árum.
4. Reikningar félagsins lagðir fram og bornir upp til samþykktar
Jón Ragnar Höskuldsson gjaldkeri kynnti reikningana sem eru einnig birtir á vefsíðu U3A. Rekstrarafgangur var 2.472.725.
Eignir í árslok voru 16.042.842. Þar eru innifaldir styrkir sem veittir voru til þýðingar á vefsíðum o.fl. og voru veittir voru til nokkurra ára.
Reikningar U3A voru samþykktir samhljóða.
5. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga
Spurt var um tímaáætlun vinnu sem fjármögnuð er af styrkjum sem enn eru ónotaðir. Um er að ræða vinnu við þýðingar og uppfærslu á vefsíðum. Upplýst var að reiknað er með að hún geti tekið allt að fimm ár.
6. Ákvörðun árgjalds.
Tillaga stjórnar um óbreytt árgjald kr. 3000 var samþykkt samhljóða.
7. Breytingar á samþykktum.
Lögð var til breyting á fyrstu málsgrein 7. greinar samþykkta U3A. Málsgreinin hljóðar svo:
Stjórn samtakanna skal skipuð sjö mönnum og tveimur varamönnum.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn og skal að hámarki gegna embætti formanns í þrjú kjörtímabil. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn og sitja að hámarki tvö kjörtímabil. Kosið er um helming stjórnar hvert ár til þess að tryggja samfellu. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Lagt er til að í stað orðanna „að hámarki“ komi orðin „að jafnaði“ (sjá undirstrikun).
Tillagan var samþykkt samhljóða.
8. Kosning formanns, stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
Formaður Hjördís Hendriksdóttir hefur gegnt formennsku í þrjú ár og gengur úr stjórn
Stefanía Traustadóttir gefur kost á sér til formennsku og var sjálfkjörin.
Þórleif Drífa Jónsdóttir, Einar Sveinn Árnason og Vigdís Pálsdóttir hafa lokið tveggja ára kjörtímabili og gefa kost á sér áfram til næstu tveggja ára. Edda Lilja Sveinsdóttir gefur einnig kost á sér í stjórn til tveggja ára.
Birna Sigurjónsdóttir og Jón Ragnar Höskuldsson hafa lokið fyrra ári af tveggja ára kjörtímabili og sitja áfram í stjórn.
Hans Kristján Guðmundsson og Hjördís Hendriksdóttir gefa kost á sér sem varamenn í stjórn til tveggja ára.
Tillaga um skipun stjórnar U3A 2026-2027 er því:
- Stefánía Traustadóttir formaður
- Þórleif Drífa Jónsdóttir
- Einar Sveinn Árnason
- Vigdís Pálsdóttir
- Birna Sigurjónsdóttir
- Jón Ragnar Höskuldsson
- Edda Lilja Sveinsdóttir
Varamenn í stjórn:
- Hjördís Hendriksdóttir og
- Hans Kristján Guðmundsson
Tillagan samþykkt samhljóða.
Skoðunarmenn reikninga voru endurkjörnir, þau
- Lilja Ólafsdóttir og
- Gylfi Þór Einarsson og
- Þórleifur Jónsson til vara.
9. Önnur mál.
- Birna Sigurjónsdóttir, varaformaður þakkaði Hjördísi Hendriksdóttur fyrir gott samstarf sem formaður U3A undanfarin þrjú ár og færði henni blómvönd.
- Stefanía Traustadóttir nýkjörinn formaður þakkaði traustið. Hún sagði frá fyrstu kynnum sínum af U3A sem var í gegnum bókmenntahópinn. Síðan tók við þátttaka í öðru starfi og í stjórn samtakanna. Hún lýsti ánægjulegri reynslu sinni af starfinu sem byggir á góðu samstarfi og áhuga. Hún vill halda áfram á sömu braut sem formaður.
- Hans Kristján Guðmundsson minnti á fréttabréfið sem kemur út fyrsta þriðjudag í mánuði og er sent til allra félaga. Efni þess eru upplýsingar um starfið framundan ásamt greinum og pistlum. Hans spurði um áhuga fundarmanna á fréttabréfinu og margir fundarmenn sögðust fylgjast með því. Almenn ánægja virðist með fréttabréfið. Hans hvatti félaga til að leggja til efni í fréttabréfið.
- Minnt á ALDIN sem eru samtök eldra fólks gegn loftslagsvá. Margir eru bæði í U3A og ALDIN og lýst var eftir nánara samstarfi milli félaganna. Birna Sigurjónsdóttir skýrði frá því að nánara samstarf væri í undirbúningi. Umhverfishópur U3A tekur þátt í Grænu göngunni á sumardaginn fyrsta ásamt ALDIN og fleiri samtökum.
- Guðrún Bjarnadóttir minnti á TUMA sem er tengslanet um upplýsinga- og miðlalæsi. U3A á aðild að þessu tengslaneti. Í næsta fréttabréfi verður fjallað um þau mál.
- Spurt var um takmarkanir á fjölda á viðburði U3A. Hjördís Hendriksdóttir svaraði og sagði fjölda fara eftir eðli viðburða t.d. hjá menningarhópnum. Sums staðar er einungis hægt að taka á móti ákveðnum fjölda. Einnig getur verið uppselt á fyrirlestra samkvæmt skráningu. Hámarksfjöldi í salnum í Hæðargarði er 80. Þórleif Drífa útskýrði verklag við skráningu á viðburði og mætingar, sem er fyrst og fremst til að halda utan fjölda gesta. Ekki skila sér allir sem skrá sig á fyrirlestra og oftast koma einhverjir sem hafa ekki skráð sig. Fólki er aldrei vísað frá.
Fleira ekki gert og fundi slitið um kl. 17:35
Fundarritari Emma Eyþórsdóttir


