Fréttabréf U3A Reykjavík í október 2023.

Við vekjum athygli á að fréttabréf  U3A Reykjavík er nú komið út og hefur verið sent áskrifendum. Þar er að að finna áhugaverðar greinar um málefni eldra fólks.

Efni hins nýja fréttabréfs er:

  • Fréttabréfið í nýjum farvegi
  • Ég skal bæta þér þetta upp – síðar
  • Málefni eldra fólks í brennidepli um heim allan
  • Hættu þessu væli og taktu þér tak
  • Að ná sér í fast viðhald að sama tíma að ári
  • Viðburðir U3A Reykjavík í október 2023

Fréttabréf U3A Reykjavík tekur nú við af Fréttabréfi Vöruhúss tækifæranna, sem hefur komið út samfleytt síðan í nóvembermánuði 2020. Hægt verður áfram að nálgast eldri fréttabréf á vef Vöruhúss tækifæranna og síðar einnig á vef U3A Reykjavík. Hið nýja fréttabréf verður aðgengilegt á báðum vefjum auk þess að vera sent á netföng áskrifenda fréttabréfs Vöruhússins.

Sérstakur ritstjórnarhópur U3A félaga sér um útgáfu Fréttabréfsins. Sem fyrr er Fréttabréfinu ætlað að vera vettvangur fræðslu og upplýsinga um málefni fólks á þriðja æviskeiðinu með virkni í fókus. Þar verða birtir fjölbreyttir pistlar og greinar um mál sem varða eldra fólk og tækifæri sem standa þeim til boða þeim, jafnt fyrir sem eftir að hefðbundnu starfi lýkur. Þá mun Fréttabréfið birta pistla um þróun mála eldri borgara innanlands sem erlendis. Félagar U3A Reykjavík eru hvattir til  að koma með tillögur um umfjöllunarefni. Ritstjóri Fréttabréfsins er Hjördís Hendriksdóttir, hjordis.hendriks@outlook.com og aðrir í ritstjórn eru þau Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, Hans Kristján Guðmundsson, Jón Ragnar Höskuldsson og Viðar Eggertsson.

Lesa má þetta fyrsta fréttabréf haustsins hér

Fréttabréf U3A Reykjavík október 2023 

Njótið!

Næsta fréttabréf kemur svo út þriðjudaginn 7. nóvember, en hægt er að skoða fyrri fréttabréf á vef vöruhússins og gerast áskrifandi hér.

Með kveðjum frá ritstjórn

Scroll to Top
Skip to content