Páskakveðja frá stjórn U3A Reykjavík

Páskafrí U3A og viðburðir framundan

U3A Reykjavík – Háskóli þriðja æviskeiðsins tekur páskafrí að venju og því verða engir þriðjudagsfyrirlestrar 15. og 22. apríl.

Þriðjudagsfyrirlestrarnir hefjast svo aftur þriðjudaginn 29. apríl þegar Stefán Gíslason, líffræðingur flytur fyrirlesturinn: Nýtni er ekki níska sem fjallar um þær breytingar sem orðið hafa á lífsháttum á Íslandi (og annars staðar á Vesturlöndum) á undanförnum 100 árum eða svo, einkum með tilliti til nýtni og sóunar.  6. maí fáum við svo kynningu á nýjum næringarviðmiðum frá Jóhönnu Eyrúnu Torfadóttur, verkefnastjóra næringar hjá embætti Landlæknis og lektor í lýðheilsuvísindum við Háskóla Íslands.

Aðrir fyrirlestrar verða auglýstir fljótlega.

Stjórn U3A óskar félagsfólki gleðilegra páska!

 

Dagur

20.04.2025
  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content