Gefa af sér, vaxa saman: Jákvæð áhrif sjálfboðaliðastarfs á einstaklinga og samfélög.

Þriðjudaginn 25. febrúar kl. 16:30 kemur Sigurbjörg Birgisdóttir sérfræðingur í sjálfboðastörfum til okkar í Hæðargarð 31 og fjallar um hvernig sjálfboðaliðastarf hefur jákvæð áhrif bæði á einstaklinga og samfélög.
Skoðað verður hvernig þátttaka í sjálfboðaliðastarfi eflir persónulegan þroska, byggir upp sjálfstraust og eykur lífsgæði með sterkari tengslum og aukinni félagslegri ábyrgð. Einnig verður rætt hvernig sjálfboðaliðar stuðla að samheldni, bættu samfélagi og jákvæðri þróun í nærumhverfi sínu.
Fyrirlesturinn byggir á rannsóknum, reynslusögum og hagnýtum dæmum og verður efnið tengt við grunngildi og verkefni Rauða krossins á Íslandi.
Sigurbjörg Birgisdóttir er sérfræðingur í sjálfboðaliðastjórnun hjá Rauða krossinum á Íslandi.

Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 25.02.2025
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Sigurbjörg Birgisdóttir
sérfræðingur í sjálfboðaliðastörfum
Næsti viðburður
- Gamlir áhrifavaldar: Ari fróði, Konrad Maurer og Jónas frá Hriflu. Er unga fólkið að verða afhuga Íslendingasögunum?
-
Dagur
- 04 mar 2025
-
Tími
- 16:30