Félagsfundur U3A Reykjavík
![](https://u3a.is/wp-content/uploads/2022/08/félagsfundur_2021-09-07_171353-1-768x403.jpg)
Við hefjum vetrarstarfið með félagsfundi í Hæðargarði 31 þriðjudaginn 6. september kl. 16:30. Á dagskrá er stutt kynning á starfsemi U3A Reykjavík og á verkefninu Vöruhús tækifæranna. Síðan verða umræður og félagar leggja fram sínar hugmyndir um fyrirlestra og viðburði sem þeir hafa áhuga á að settir verði á dagskrá á komandi mánuðum. Þannig verður til hugmyndabanki sem stjórn félagsins vinnur úr þegar viðburðir eru skipulagðir.
Kaffi og kleinur í boði.
Við hlökkum til að sjá sem flesta félaga í Hæðargarði þennan fyrsta þriðjudag í september.
Stjórn U3A Reykjavík
![Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31](https://u3a.is/wp-content/uploads/2020/08/u3a-felagsmidstodin-haedargardi.jpg)
Staðsetning
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031Dagur
- 06.09.2022
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Næsti viðburður
- Sumarkveðja frá stjórn U3A Reykjavík
-
Dagur
- 15 ágú 2024