Eldvirkni á Reykjanesskaga
Þriðjudaginn 18. október kl. 16:30 kynnir og ræðir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur eldvirkni á Reykjanesskaga. Fyrirlesturinn verður að venju í Hæðargarði 31 og þið öll í U3A velkomin. Jafnframt verður fyrirlestrinum streymt á Zoom.
Í fyrirlestrinum verður farið stuttlega yfir jarðfræðilega legu og eldgosasögu Reykjanesskagans, framvindu eldgosa Fagradalsfjallselda, nefnilega gosin í Geldingadölum 2021 og Meradölum 2022, og þær hættur sem samfélagið stendur frammi fyrir vegna framtíðargosa í skaganum.
Þorvaldur Þórðarson er prófessor í eldfjalla- og bergfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands. Sérþekking á nútíma eldgosum og eldvirkni á virkum heitum reitum (t.d. Íslandi, Hawaii) er undirbyggð af víðtækri reynslu í rannsóknum á gömlum og kulnuðum eldstöðvarkerfum víðsvegar um jörðina, allt frá Upphafsöld tíl Nýlífsaldar. Þorvaldur hefur rannsakað íslensk eldfjöll í rétt tæpa fjóra áratugi og verið leiðandi í rannsóknum á eðli íslenskra hraun- og sprengigosa ásamt áhrifum þeirra á samfélag, umhverfi og veðurfar.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 18.10.2022
- Expired!
Tími
- 16:30 - 18:00
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Þorvaldur Þórðarsoneldfjallafræðingur
Næsti viðburður
- Viltu tileinka þér vínlausan lífsstíl?
-
Dagur
- 07 jan 2025
-
Tími
- 16:30