Stjórn U3A Reykjavík 2021-2022

Stjórn U3A Reykjavík 2021-2022

Ný stjórn fyrir starfsárið 2021-2022 var kosin á aðalfundi félagsins 23. mars 2021 sem haldinn var í Hæðargarði 31.

Stjórn U3A Reykjavík er skipuð sjö mönnum. Formaður er kosinn sérstaklega á aðalfundi ár hvert og má sitja í þrjú ár. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi til tveggja ára og geta setið að hámarki tvö kjörtímabil. Stjórnarmenn eru:

Birna Sigurjónsdóttir, formaður starfaði sem verkefnisstjóri á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur áður en hún lét af störfum. Hún er með B.Ed. kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands og M.Ed. gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá sama skóla. Hún hefur starfað að skólamálum og félagsmálum fyrir Kennarasamband Íslands og var virk í Kvennalistanum frá stofnun hans og átti sæti á framboðslistum bæði til alþingis og bæjarstjórnar í Kópavogi.

Birna Bjarnadóttir, varaformaður lauk námi frá Kennaraskóla Íslands og kenndi í framhaldsskólum áður en hún tók við starfi sem skólastjóri Bréfaskólans. Sat í bæjarstjórn Kópavogs í nokkur ár. Starfaði við stjórnun heilsugæslustöðva frá 1992, síðast í stjórnsýslu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Kom að stofnun Dansíþróttasambands Íslands og var fyrsti formaður þess. Sat í stjórn Fræðagarðs stéttarfélags innan BHM. Er fulltrúi í nefndum AGE-Platform Europe um málefni aldraðra og aðili að Eurag, evrópskum samtökum um málefni aldraðra.

Jón Ragnar Höskuldsson, gjaldkeri starfar við hönnun og forritun upplýsingakerfa.

Emma Eyþórsdóttir, ritari er búfjárfræðingur, menntuð í Kanada og í Noregi með sérhæfingu í kynbótum búfjár.  Hún starfaði sem sérfræðingur á Rannsóknastofnun landbúnaðarins frá 1983 og síðar sem dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands til 2020, þegar hún lét af störfum.  Hún sinnti rannsóknum og kennslu í búfjárrækt ekki síst á sviði sauðfjárræktar og varðveislu erfðaauðlinda í búfé. Emma hefur ritað fjölda faggreina í innlend og erlend rit og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum á fagsviði sínu.mHún hefur verið meðlimur í rótarýklúbbnum Borgum í Kópavogi frá 2001 og verið ritari klúbbsins í eitt ár. Hún hefur verið í kirkjukórum um árabil og gegnt formennsku í kór Hjallakirkju. Eiginmaður Emmu er Brynjólfur G. Brynjólfsson, sálfræðingur (á eftirlaunum).

Meðstjórnendur:
Borgþór Arngrímsson er búsettur í Hafnarfirði, giftur Vilborgu Þ. Hauksdóttur. Menntun: 1998  Open University Brussel, diploma, almenn stjórnun. 1995  Ríkisútvarpið, fréttamannapróf. 1995  Háskóli Íslands, kennsluréttindi á framhaldsskólastigi. 1983  Hafnarháskóli, leiklistarfræðingur. 1976  Central Academy of Film Art and Drama (CAFAD) London,  leikarapróf. 1971   Samvinnuskólinn Bifröst, samvinnuskólapróf. Helstu störf: 2010 –  2018  Fréttamaður RÚV í Kaupmannahöfn. 1999 – 2010  Ríkisútvarpið, fréttamaður, lengst af hjá Fréttastofu Sjónvarps. 1983 – 1999  Fjölbrautaskóli Suðurnesja Keflavík, framhaldsskólakennari (leyfi 1995 -1998). 1974 – 1998  Kaupfélag Austur Skaftfellinga, Þjóðgarðinum Skaftafelli, verslunarstjóri 22 sumur.

Guðrún Bjarnadóttir er stúdent frá MR 1966 og hefur ýmist lært og/eða unnið til 2016. Á þeirri ferð fékk ég grunn- og framhaldsskólakennsluréttindi, er talmeinafræðingur og sálfræðingur. Ég lauk doktorsgráðu í skólasálfræði frá Penn State University og skoðaði hljóðkerfisvitund sem forspá um lestrargetu á mótum leikskóla og grunnskóla. Ég hef kennt á öllum skólastigum, einna lengst sálfræði og uppeldisfræði í MH, en síðasta launaða starfið var sálfræðingur hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Einnig hef ég vasast í stjórnmálum og öðrum félagsmálum, var meðal annars í barnavernd Hafnarfjarðar í lok síðustu aldar, stjórn Blindrabókasafnsins áratug fyrr og í réttindanefnd Félags talmeinafræðinga um aldamótin. Fyrir Kóf19 var ég virkur sjálfboðaliði hjá Rauða Krossinum.

Hans Kristján Guðmundsson er með doktorsgráðu í eðlisverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Hann hefur unnið að vísinda- og nýsköpunarmálum alla tíð, m.a. við Háskóla Íslands, Iðntæknistofnun, sem vísindafulltrúi hjá EFTA og Sendiráði Íslands í Brussel, rektor NorFA í Osló, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís) og forseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri. Hann hefur síðustu árum unnið að málefnum þriðja æviskeiðsins á vettvangi U3A, gegndi formennsku árin 2015 – 2019 og verið virkur í alþjóðastarfi samtakanna, þar á meðal í þremur verkefnum í Evrópusamstarfi.

Scroll to Top
Skip to content