Stjórn U3A Reykjavík 2018 – 2019

Stjórn U3A Reykjavík er skipuð sjö mönnum. Formaður er kosinn sérstaklega á aðalfundi ár hvert og má sitja í þrjú ár. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi til tveggja ára og geta setið að hámarki tvö kjörtímabil.

Hans Kristján Guðmundsson, formaður er með doktorsgráðu í eðlisverkfræði frá KTH í Stokkhólmi. Hann hefur unnið að vísinda- og nýsköpunarmálum alla tíð, m.a. við Háskóla Íslands, Iðntæknistofnun, sem vísindafulltrúi hjá EFTA og Sendiráði Íslands í Brussel, rektor NorFA í Osló, forstöðumaður Rannsóknamiðstöðvar Íslands (Rannís) og forseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.

Birna Sigurjónsdóttir, varaformaður starfaði sem verkefnisstjóri á Skóla- og frístundasviði Reykjavíkur áður en hún lét af störfum. Hún er með B.Ed. kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands og meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræðum frá sama skóla. Hún hefur starfað að skólamálum og félagsmálum fyrir Kennarasamband Íslands og var virk í Kvennalistanum frá stofnun hans og átti sæti á framboðslistum bæði til alþingis og bæjarstjórnar í Kópavogi.

María Ragnarsdóttir, meðstjórnandi er með doktorsgráðu í sjúkraþjálfun frá Heilbrigiðsvísindasviði Háskóla Íslands. Hún var ein af þremur upphafsmönnum námsbrautar í sjúkraþjálfun í HÍ, lektor og formaður námsbrautainnar um tíma. Hún starfaði einnig á Landspítala Háskólasjúkrahúsi og var fyrsti sjúkraþjálfarinn sem ráðinn var rannsóknasjúkraþjálfari. Þá hefur María unnið að nýsköpun með þróun tveggja mælitækja fyrir sjúkraþjálfun sem hafa bæði unnið til uppfinningaverðlauna. Hún er heiðursfélagi í Félagi sjúkraþjálfara og stofnfélagi í KVENN félagi kvenna í nýsköpun.

Jón Ragnar Höskuldsson, gjaldkeri starfar við hönnun og forritun upplýsingakerfa.

Dagrún Þórðardóttir, meðstjórnandi er viðskiptafræðingur frá HÍ og með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá sama skóla. Starfaði sem skrifstofustjóri hjá Vinnueftirlitinu áður en hún lét af störfum.

Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, meðstjórnandi starfaði sem stjórnandi á Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar áður en hún lét af störfum. Ingibjörg er bachleor gráðu í landfræði og mastersgráður í skipulagsfræðum og í mannauðsstjórnun. Hún hefur starfað að félagsmálum og m.a. verið formaður félags sem styður við menntun stúlkna í Kampala, Uganda. Ingibjörg er fyrrverandi formaður U3A Reykjavík.

Birna Bjarnadóttir, meðstjórnandi lauk námi frá Kennaraskóla Íslands og kenndi í framhaldsskólum áður en hún tók við starfi sem skólastjóri Bréfaskólans. Sat í bæjarstjórn Kópavogs í nokkur ár. Starfaði við stjórnun heilsugæslustöðva frá 1992, síðast í stjórnsýslu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Kom að stofnun Dansíþróttasambands Íslands og var fyrsti formaður þess. Sat í stjórn Fræðagarðs stéttarfélags innan BHM. Er fulltrúi í nefndum AGE-Platform Europe um málefni aldraðra og aðili að Eurac, evrópskum samtökum um málefni aldraðra.

Scroll to Top
Skip to content