Seinni hálfleikur, fræðsla og virkni alla ævi.

Málþing í tilefni af 10 ára afmæli félagsins

Í ár eru tíu ár síðan U3A – Háskóli þriðja æviskeiðsins kom til Íslands og Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir réðst í að stofna U3A Reykjavík.

Laugardaginn 15. október nk. höldum við málþing til að fagna þessum áfanga í starfi félagsins.

Málþingið verður haldið í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 13:00-17:00. Undirbúningsnefnd hefur fengið til leiks frábæra fyrirlesara sem flytja stutt og snörp erindi. Sjá dagskrána sem birtist hér fyrir neðan. Uppistandarinn Ari Eldjárn er síðastur á dagskrá og í lokin verður boðið upp á samveru, spjall og léttar veitingar.

Félagsfólk er hvatt til að taka þátt og skrá sig hér. Málþingið er opið öllum og enginn aðgangseyrir.

Scroll to Top
Skip to content