Samþykktir U3A Reykjavík
Með breytingum sem samþykktar voru á aðalfundi 21. mars 2023
1. grein
Nafn samtakanna er U3A Reykjavík. U3A er skammstöfun á The University of the Third Age (Háskóli þriðja æviskeiðsins) en slík samtök starfa víða um
heim. Samtökin eru frjáls félagasamtök og starfa samkvæmt lögum nr.
110/2021 um félög til almannaheilla.
2. grein
Heimili samtakanna og varnarþing er í Reykjavík.
3. grein
Tilgangur samtakanna er tvíþættur. Annars vegar að stuðla að því að
félagsmenn hafi fjölbreytilegt framboð af fræðslu án þess að um formlega skólagöngu sé að ræða og hins vegar að stuðla að virkni og aukinni vitund félagsmanna og samfélagsins um mikilvægi þriðja æviskeiðsins, tækifærin sem í því felast og mannauðinn sem í því býr.
Fræðslan byggir annars vegar á jafningjafræðslu þar sem félagar samtakanna deila með sér þekkingu, reynslu og færni og hins vegar á fræðslu annarra sérfræðinga og fræðimanna.
Tilgangi sínum hyggjast samtökin ná m.a. með því að;
- Skipuleggja og sjá um fyrirlestra, ferðir og heimsóknir.
- Stofna hópa um viðfangsefni, innlend og erlend, sem félagar
samtakanna velja sjálfir. - Efla kynni við aðra innan og utan U3A samtakanna, hvar sem er í heiminum.
- Taka þátt í rannsóknum og samstarfsverkefnum innanlands sem utan.
4. grein.
Samtökin skulu fjármögnuð með árgjöldum félagsmanna og styrkjum og framlögum sem samtökunum kunna að berast og skal fjármunum varið til starfsemi samtakanna, sbr, 3. gr. Fjárhæð árgjalda skal ákveðin á aðalfundi.
5. grein
Allir sem eru á þriðja æviskeiðinu geta átt aðild að samtökunum óháð
búsetu.
6. grein
Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum samtakanna. Hann skal haldinn í mars ár hvert og telst löglegur ef til hans er boðað rafrænt eða bréflega með minnst 15 daga fyrirvara. Tillögur að breytingum á samþykktum skulu hafa borist formanni eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Senda skal slíkar tillögur til félaga fyrir aðalfund.
Í fundarboði skal tilgreina dagskrá, tillögur að breytingum á samþykktum, ásamt öðrum tillögum sem borist hafa og bera þarf undir atkvæði aðalfundar. Stjórn samtakanna skipuleggur og ber ábyrgð á framkvæmd aðalfundar. Allir skráðir félagar hafa rétt til setu á aðalfundi með atkvæðisrétti. Hafi félagi ekki greitt árgjald tvö ár í röð, skal hann færður af félagaskrá. Stjórn samtakanna getur boðað til aukaaðalfundar ef þörf krefur og skal hann boðaður með sama hætti og aðalfundur.
Dagskrá aðalfundar skal vera:
- Setning fundar.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar.
- Reikningar félagsins lagðir fram og bornir upp til samþykktar.
- Umræður um starfið framundan.
- Ákvörðun árgjalds.
- Breytingar á samþykktum
- Kosning formanns, stjórnar og skoðunarmanna reikninga.
- Önnur mál.
Á aðalfundi ræður meirihluti atkvæða úrslitum, þó þarf a.m.k. ¾ atkvæða til
breytinga á samþykktum samtakanna. Skrá skal allar samþykktir og
ákvarðanir aðalfundar í fundargerð.
Fjárhagsár samtakanna er almanaksárið. Tveir skoðunarmenn reikninga og einn til vara skulu kosnir á aðalfundi og mega þeir ekki koma úr hópi stjórnarmanna eða gegna stjórnunarstörfum fyrir samtökin. Stjórnin skal hafa lokið gerð ársreikninga og lagt fyrir skoðunarmenn reikninga eigi síðar
en einum mánuði fyrir aðalfund.
7. grein
Stjórn samtakanna skal skipuð sjö mönnum og tveimur varamönnum.
Formaður skal kosinn til eins árs í senn og skal að hámarki gegna embætti formanns í þrjú kjörtímabil. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til tveggja ára í senn og sitja að hámarki tvö kjörtímabil.
Kosið er um helming stjórnar hvert ár til þess að tryggja samfellu. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum.
Stjórnin mótar stefnu samtakanna, skipuleggur starfið, annast daglegan rekstur og samræmingu og hefur umsjón með að upplýsingamiðlun sé
nægileg innan samtakanna og milli hópa. Stjórnin getur haft frumkvæði að stofnun hópa. Stjórnin ber ábyrgð á útgáfumálum, þ.m.t. heimasíðu samtakanna og kynningu samtakanna. Einnig hefur stjórnin forystu í samskiptum við önnur samtök U3A í heiminum. Meiri hluti stjórnar ritar firma samtakanna.
Stjórnarfundir skulu haldnir eftir þörfum, þó ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári.
8. grein
Félagsmenn stofna hópa um ýmis áhugamál sem samrýmast tilgangi
samtakanna og velja sér umsjónarmann (einn eða fleiri).
Hóparnir bera sjálfir ábyrgð á framkvæmd starfsins. Umsjónarmaður eða annar sem til þess er valinn sér um að upplýsa stjórn um stofnun hópsins, starfsemi hans og hverjir eru félagar í hópnum.
9. grein
Félagsfundir skulu haldnir þegar stjórn telur þörf á því eða félagsmenn óska eftir því. Skylt er að boða til félagsfundar ef minnst tíundi hluti atkvæðisbærra félagsmanna óskar eftir því. Fundargerðir félagsfunda eru aðgengilegar öllum félagsmönnum.
10. grein
Samtökin geta kjörið heiðursfélaga samkvæmt tillögu frá stjórn félagsins. Tillaga um slíkt kjör skal borin fram á aðalfundi og telst hún samþykkt ef ¾ hlutar fundarmanna greiða henni atkvæði með leynilegri kosningu.
11. grein
Komi fram tillaga um um slit samtakanna skal hún lögð fyrir aðalfund og telst hún samþykkt ef ¾ hluti fundarmanna greiðir henni atkvæði sitt. Verði samtökin lögð niður skulu eignir þeirra, ef einhverjar eru, renna til félaga eða stofnana sem vinna að málefnum sem samrýmast tilgangi samtakanna samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar.
12. grein
Um þau atriði sem ekki er kveðið sérstaklega á um í samþykktum þessum fer samkvæmt ákvæðum laga nr. 110/2021 um félög til almannaheilla og öðrum lögum sem við geta átt.
13. grein
Samþykktir þessar voru samþykktar á aðalfundi samtakanna 21. mars 2023 og öðlast þegar gildi. Breytingar á 1. og 12. gr. öðlast þó ekki gildi fyrr en við skráningu í almannaheillafélagaskrá.
21. mars 2023
F. h. stjórnar U3A Reykjavík,
(undirritun meiri hluta stjórnar)