Ný stjórn var kjörin á aðalfundi U3A Reykjavík sem haldinn var í Hæðargarði 31 19. mars.
Hjördís Hendriksdóttir var endurkjörin formaður til eins árs. Birna Sigurjónsdóttir og Guðrún Bjarnadóttir sitja áfram í stjórn og eru á seinna ári kjörtímabilsins. Þórleif Drífa Jónsdóttir var kjörin til áframhaldandi setu í stjórn næstu tvö ár. Nýtt stjórnarfólk er: Einar Sveinn Árnason, Stefanía Traustadóttir og Vigdís V. Pálsdóttir. Hér má lesa kynningu á stjórnarfólki: Stjórn U3A Reykjavík 2024-2025