27.-28. september verður haldin í Nauthól málstofa undir heitinu: Eldra fólk og loftslagsmál – Báðum til gagns. Á dagskrá eru stutt erindi um starfsemi hópa eldri borgara frá Norðurlöndunum og víðar varðandi umhverfis- og loftslagsmál. Sjá dagskrá hér að neðan. Tengill fyrir skráningu er neðst í dagskránni, aðeins 50 manns komast að svo endilega skráið ykkur sem fyrst. Málstofunni verður einnig streymt og með því að merkja við streymi í skráningu er hægt að fylgjast með heiman frá.
Málstofan er hluti af norrænu samstarfsverkefni sem fyrirtækið Environice og Stefán Gíslasons vinna fyrir Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið með styrk frá Norrænu ráðherranefndinni. Umhverfishópur U3A Reykjavík hefur tekið þátt í verkefninu.