Fyrsta stjórn samtakanna, starfsárið 2012-2013
Fyrsta röð frá vinstri:
- Jón Björnsson, ritari,
- Ingibjörg Rannveig Guðlaugsdóttir, formaður,
- Snorri Welding.
Önnur röð frá vinstri:
- Helga Margrét Guðmundsdóttir,
- Ásdís Skúladóttir,
- Erna Steinsdóttir, gjaldkeri,
- Aðalbjörg Traustadóttir.
Stjórn U3A Reykjavík er skipuð sjö mönnum. Formaður er kosinn sérstaklega á aðalfundi ár hvert og má sitja í þrjú ár. Aðrir stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi til tveggja ára og geta setið að hámarki tvö kjörtímabil. Stjórnarmenn eru:
Aðalbjörg Traustadóttir er framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar fyrir Laugardals- og Háaleitishverfi.
Erna Steinsdóttir starfaði við endurskoðun og sem bókari í rúm fjörutíu ár áður en hún lét af störfum. Erna er með Kvennaskólapróf.
Ásdís Skúladóttir er forstöðumaður Félagsmiðstöðvar Reykjavíkurborgar að Hæðargarði 31. Ásdís starfaði áður sem leikari og leikstjóri á Íslandi og erlendis. Ásdís er með leiklistarpróf, kennaraskólapróf, BA gráðu í stjórnmálfræðum og með diploma í Master of Public Administration. Ásdís hefur fengið Ridddarakrossinn fyrir störf sín í þágu eldra fólks í gegnum árin.
Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir starfaði sem stjórnandi á Skipulags- og byggingarsviði Reykjavíkurborgar áður en hún lét af störfum. Ingibjörg er með mastersgráður í skipulagsfræððum og í mannauðsstjórnun.
Jón Björnsson er sálfræðingur og rithöfundur. Jón hefur m.a. starfað sem félagsmálastjóri á Akureyri og framkvæmdastjóri menningar-, uppeldis- og félagsmála í hjá Reykjavíkurborg.
Helga Margrét Guðmundsdóttir er deildarstjóri félagsstarfs í Félagsmiðstöð Reykjavíkurborgar að Hæðargarði 31. Helga er með B.A. gráðu í Tómstunda- og félagsmálafræðum.
Snorri F. Welding hefur aðallega starfað við ráðgjafarverkefni á sviði rekstrar og stjórnunar. Snorri hefur menntun í stjórn- og rekstri heilbrigðisþjónustu og stundar núna nám í Kínverskum fræðum við Háskóla Íslands.