Síðastliðinn laugardag heimsóttu 18 félagar U3A Reykjavík Viðey og nutu leiðsagnar um merkilega sögu staðarins og náttúru. Sest var niður í kirkjunni og hlýtt á frásögn af staðnum um búsetu höfðingja og byggingarsögu staðarins. Í eyjunni var á árum áður mikið kúabú og ræktun og austast á eyjunni mikil útgerð í upphafi 20. aldar. Þangað gekk hópurinn og skoðaði skólahúsið en þar er sýning frá þeim tíma sem þorpið stóð í kringum höfn og fiskvinnslu.
Við settumst svo í kaffi í Viðeyjarstofu
og nokkrir gengu að friðarsúlu Johns
Lennon.