Vorferð U3A Reykjavík verður að þessu sinni farin á Reykjanesskagann með leiðsögn Hjálmars Waag Árnasonar þriðjudaginn 31. maí . Við leggjum af stað með rútu frá Hæðargarði 31 kl. 9:00 og áætlum heimkomu um 15:30.
Ekið verður hringinn um Reykjanesið eins og merkt er á kortinu.
Stoppað í Seltúni (hverasvæðið við Krýsuvík). Stoppað við nýja hraunið og gengið að jaðrinum (ca. 15 mínútna gangur).
Ekið um Þórkötlustaðanes. Léttur hádegisverður í Salthúsinu í Grindavík. Síðan ekið um Hafnir (Jamestown o.fl.) og Ásbrú og þaðan til Reykjavíkur.
Verð kr. 7.500, hádegisverður innifalinn. Vinsamlegast greiðið að lokinni skráningu:
kt: 430412-0430, banki: 0301-26-011864
Hjálmar leiðsögumaður okkar er fyrrverandi skólameistari, þingmaður og framkvæmdastjóri Keilis á Ásbrú. Hann er vanur leiðsögumaður og geysifróður um svæðið.