Velsældarhagkerfið
Þriðjudaginn 10. febrúar kl. 16:30 kemur til okkar í Hæðargarðinn Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor emerita við Háskóla Íslands og fjallar um velsældarhagkerfið.
Velsældarhagkerfi er notað til að lýsa sýn sem er frábrugðin hinni hefðbundu nálgun á hagkerfið út frá eingöngu efnahagslegum mælingum. Þess í stað eru velsæld og lífsgæði metin út frá fjölmörgum félagslegum og umhverfislegum þáttum jafnt sem efnahagslegum. Velsældarhagkerfi er því efnahagskerfi þar sem leitast er við að forgangsraða í þágu velferðar og lífsgæða almennings á breiðum grunni
Kristín Vala er menntaður jarð- og jarðefnafræðingur frá Íslandi og Bandaríkjunum. Frá aldamótum hafa rannsóknir hennar og kennsla lútið að málefnum sjálfbærni út frá öllum víddum hennar, náttúru/umhverfi, samfélagi og velsæld. Hún hefur starfað með ýmsum félagasamtökum á Íslandi og á alþjóðavísu sem vinna að náttúruvernd og sjálfbærni.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 10.02.2026
- Útrunnið!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Kristín Vala RagnarsdóttirProfessor emerita við Háskóla Íslands
Næsti viðburður
- Skiptir matur máli?
-
Dagur
- 24 feb 2026
-
Tími
- 16:30