Umhverfishópur U3A Reykjavík- stofnfundur

Stefnt er að því að stofna umhverfishóp U3A félaga á fundi fimmtudaginn 12. maí kl. 16:30  Áhugasamir félagar munu þar leggja línurnar að því hvernig hópurinn hyggst vinna.

Markmiðið er að stuðla að vernd umhverfis og loftslags með því að vekja athygli á leiðum til umhverfisverndar og efna til aðgerða sem bæta umhverfi og vinna gegn loftslagsvá. Einnig verða félagsmenn hvattir til að láta til sín taka í umhverfismálum og reglulega birtar hvatningar og ábendingar um umhverfisvænan lífsmáta.  Hópurinn verður tengiliður U3A út á við varðandi umhverfismál og gerir væntanlega  tillögur að fyrirlestrum á vegum U3A Reykjavík á þessu sviði.

Frumkvæði að stofnun umhverfishóps fyrir fólk á þriðja æviskeiðinu kemur upphaflega frá Umhverfis- orku- og loftslagsráðuneyti ásamt hugmynd um að verkefnið verði norrænt samstarfsverkefni með þátttöku sambærilegra hópa á Norðurlöndunum. Þessi hugmynd er enn í mótun.

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031

Dagur

12.05.2022
Expired!

Tími

16:30
Uppbókað!

The event is finished.

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content