Umhverfishópur hittist 30. mars kl. 16:30
Fimmtudaginn 30. mars kl. 16:30 koma til okkar í Hæðargarð 31 Julie Kermarec og René Biasone frá Umhverfisstofnun.
Þau ætla að kynna verkefni sem heitir Grey4Green, alþjóðlegt samstarfsverkefni (ERASMUS+) sem hófst á þessu ári og markmið þess er að þróa sjálfboðaliðaverkefni í náttúruvernd meðal fólks sem er eldra en 60 ára til að stuðla að félags-, menntunar- og persónulegri þróun þeirra.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar (á ensku) um verkefnið á þessari vefsíðu: https://grey4green. eu/about/
Fyrsti liður í verkefninu er þjálfunarnámskeið sem verður haldið á Kýpur fyrir starfsmenn og kennara sem vinna með þessum tiltekna aldurshópi og að umhverfismálum.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 30.03.2023
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Næsti viðburður
- Viltu tileinka þér vínlausan lífsstíl?
-
Dagur
- 07 jan 2025
-
Tími
- 16:30