Ullarævintýri – vorferð U3A Reykjavík 7. júní

Ullarævintýri á Suðurlandi 7. júní

Að þessu sinni verður farið í tvær vorferðir á vegum U3A Reykjavík. Síðari ferðin verður farin 7. júní  og er: Ullarævintýri á Suðurlandi, verð 15.900. Lagt verður af stað frá Hæðargarði kl. 9:00 miðvikudaginn 7. júní og áætluð heimkoma er kl. 17:30.

Dagskrá:

Komið við hjá Guðrúnu í hespuhúsinu, kaffi og heimabakað, kynning á náttúrulegri litun ullarinnar.

Farið í Uppspuna þar sem við fáum kynningu á þeirra framleiðslu og heimsækjum búðina á efri hæðinni.

Um hádegisbil rennum við til Hestheima og fáum þar léttan hádegisverð, mögulegt er að panta vín með matnum (ekki innifalið).

Eftir hádegið er komið við á Hárlaugsstöðum þar sem spunasystur taka á móti okkur, þær eru með ýmislegt á prjónunum, eru að spinna ullina og bjóða upp á garn af forystufé og feldfé. Mjög skemmtileg heimsókn.

Að lokum er komið í Þingborg sem verður fallegri með hverju árinu. Úrvalið er mikið bæði af garni og uppskriftum.

Verðið er 15.900 kr. – auk rútunnar er hádegismatur og kynningar innfalið í verðinu.

Vinsamlegast greiðið um leið og þið skráið ykkur. Greiðsla gildir sem staðfesting á þátttöku.

U3A Reykjavík

kt: 430412-0430

reikn: 0301-26-011864

Með bestu kveðju frá stjórn U3A Reykjavík.

 

Dagur

07.06.2023
Expired!

The event is finished.

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content