Tsjernóbyl bænin

Þriðjudaginn 19. apríl kl. 16:30 kynnir Gunnar Þorri Pétursson, þýðandi bókina Tsjernóbyl bænin eftir Svetlana Aleksíevítsj. Gunnar fékk íslensku þýðingarverðlaunin 2022 fyrir þýðinguna.
Um bókina segir á heimasíðu Forlagsins: Þann 26. apríl 1986 urðu sprengingar í kjarnakljúfi í Tsjernobyl í Úkraínu sem ollu stærsta kjarnorkuslysi allra tíma. Himinninn logaði og geislunin náði yfir stórt landsvæði. Slysið hafði hörmuleg áhrif á líf hundruði þúsunda mann til frambúðar. Ráðamenn reyndu að þagga það niður. Þetta er vitnisburður þeirra sem eftir lifðu. Tsjernobyl-bænin byggir á hundruðum viðtala hvítrússneska rithöfundarins og blaðamannsins Svetlönu Aleksíevítsj við fólk sem lifði kjarnorkuslysið af. Hún hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 2015 ,,fyrir margradda skrif, minnisvarða um þjáningar og hugrekki á okkar tímum“, og hafa bækur hennar verið þýddar á 53 tungumál. Tsjernobyl-þættirnir vinsælu eru að hluta til byggðir á þessari bók.
Gunnar Þorri Pétursson er þýðandi og sjálfstætt starfandi fræðimaður.

Staðsetning
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031Dagur
- 19.04.2022
- Expired!
Tími
- 16:30 - 18:00
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Gunnar Þorri Péturssonþýðandi og sjálfstætt starfandi fræðimaður
Næsti viðburður
- Ullarævintýri – vorferð U3A Reykjavík 7. júní
-
Dagur
- 07 jún 2023
Warning: Undefined array key "display_credit_url" in /var/www/virtual/u3a.is/htdocs/wp-content/plugins/modern-events-calendar/app/libraries/skins.php on line 2352