Tónlistin og uppbyggjandi áhrif hennar

Inga Björk Ingadóttir músíkmeðferðarfræðingur heldur fyrirlestur um tónlistina og fjölþætt áhrif hennar á okkur manneskjurnar. Hún segir frá fagi sínu, músíkmeðferð, og starfinu í Hljómu sem músíkmeðferðarfræðingur.

Inga Björk Ingadóttir er tónskáld, lýruleikari og söngkona. Hennar aðalstarf er við músíkmeðferð og tónlistarkennslu í Hljómu, Hafnarfirði.www.hljoma.is              Inga Björk hefur frá unga aldri lifað og hrærst í tónlist og komið víða við á tónlistarferli sínum. Hún lærði á píanó og lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla Kópavogs þar sem hún nam einnig tónsmíðar og tölvutónlist. Hún hélt til náms í músíkmeðferð í Berlín árið 2001 og lauk þar námi 2006. Frá þeim tíma hefur hún starfað við músíkmeðferð, tónlistarsköpun og kennslu hér á Íslandi og í Þýskalandi. Inga Björk hefur gefið út 2 breiðskífur auk fjölda EP platna og myndbanda, og kemur reglulega fram með tónlist sína. www.ingabjork.com

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031

Dagur

10.01.2023
Expired!

Tími

16:30

The event is finished.

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content