Sumarkveðja frá stjórn U3A Reykjavík
Félagsstarfið í U3A Reykjavík liggur niðri yfir sumartímann og stjórn tekur sumarhlé. Síðustu viðburðir voru í maí þegar farið var í heimsókn í Landnámssetrið í Borgarnesi, hópur félagsfólks fór í velheppnaða heimsókn til strandbæja við Eystrasaltið og síðasti þriðjudagsfyrirlestur var sendur út 26. maí.
Við hefjum vetrarstarfið með félagsfundi 8. september þar sem félagsfólk kemur saman til að móta hugmyndir um félagsstarfið á komandi vetri.
Stjórn sendir öllu félagsfólki óskir um gott og gleðilegt sumar.
- 10.08.2026
- 14:00
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Næsti viðburður
- Eystrasaltsferð U3A félaga
-
Dagur
- 12 ágú 2026
-
Tími
- 14:00