Sumarkveðja frá stjórn U3A Reykjavík

Sumarkveðja frá stjórn U3A ReykjavíkNú að loknu viðburðaríku starfsári hjá U3A Reykjavík sendum við í stjórninni sumarkveðju til félagsmanna. Í vetur hafa verið haldnir 43 fyrirlestrar og heimsóknir á vegum U3A Reykjavík og er þá talið saman þriðjudagsfyrirlestrar og viðburðir menningarhóps. Að meðaltali hafa 50 manns sótt fyrirlestra í Hæðargarði í vetur og um 200 félagar að meðaltali njóta þeirra eftir á þegar þeir fylgjast með upptökum heima. Sl. haust var farin seinni ferð af tveimur til Tyrklands sem skipulögð var í samvinnu við Söguferðir ehf. Nú er hafinn undirbúningur að ferð um suðurströnd Eystrasaltsins sem áætluð er vorið 2026. Fræðsla, virkni og samvera er það sem einkennir starfsemina og í þeim anda tökum við upp þráðinn í haust með félagsfundi þriðjudaginn 2. september. Samkvæmt venju biðjum við ykkur félaga í U3A Reykjavík að koma á félagsfundinn með ykkar óskir um fræðslu og fyrirlestra á komandi starfsári. Það er síðan hlutverk stjórnarinnar að hrinda hugmyndum ykkar í framkvæmd, hafa samband við fyrirlesara og skipuleggja heimsóknir og ferðir. Við hlökkum til þess starfs! Stjórn U3A Reykjavík sendir öllum félögum óskir um gott og gleðilegt sumar og hlakkar til samvinnu og samveru á komandi starfsári.
|
Dagur
- 15.08.2025
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Næsti viðburður
- Félagsfundur U3A Reykjavík 2. september 2025
-
Dagur
- 02 sep 2025
-
Tími
- 16:30