Spóinn er kominn

Þriðjudaginn 24. maí kl. 16:30 mun Borgný Katrínardóttir flytja erindi fyrir U3A félaga í Hæðargarði 31.

Erindi Borgnýjar ber yfirskriftina Spóinn er kominn. Spóinn var viðfangsefni meistaraverkefnis hennar við Háskóla Íslands. Spóinn hefur verið töluvert rannsakaður hérlendis á undanförnum árum og í erindi sínu mun Borgný greina frá því helsta sem fram hefur komið í þeim rannsóknum. Hún mun einnig ræða um framtíðarhorfur spóans hér á Íslandi í ljósi breyttrar landnotkunar og loftslagsbreytinga.

Borgný Katrínardóttir er líffræðingur að mennt, lauk meistaraprófi frá Háskóla Íslands árið 2012.  Hún hefur starfað á Náttúrufræðistofnun Íslands síðastliðin 10 ár, en áður hafði hún meðal annars unnið við rannsóknir á jaðrakönum á vegum Háskólaseturs Suðurlands og Háskólanum í Austur- Anglíu í Englandi. Hún hefur einnig unnið að rannsóknum á áhrifum ferðamanna á atferli refa á Hornströndum.

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031

Dagur

24.05.2022
Expired!

Tími

16:30 - 18:00

The event is finished.

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content