Sigurtunga – Vesturíslenskt mál og menning
Þriðjudaginn 12 mars 2024 kl. 16:30 er á dagskrá umfjöllun um vesturíslenskt mál og menningu. fluttir verða þrír fyrirlestrar undir yfirskriftinni: Sigurtunga – Vesturíslenskt mál og menning
Birna Arnbjörnsdóttir: Íslensk arfleifð í Vesturheimi, 150 ár frá upphafi vesturferða
Höskuldur Þráinsson: Hvað vitum við núna um vesturíslensku og hvað er svona merkilegt við það?
Úlfar Bragason: „Hann er alveg hættur að skrifa og sokkinn í „þjóðahafið“.“
Þau Birna, Höskuldur og Úlfar, sem eru öll prófessorar á eftirlaunum, segja frá rannsóknum á vesturíslensku máli og menningu. Þau hafa nýlega ritstýrt tveim greinasöfnum um þetta efni. Annað þeirra nefnist Sigurtunga – Vesturíslenskt mál og menning og kom út hjá Háskólaútgáfunni 2018. Hitt heitir Icelandic Heritage in North America og kom út hjá University of Manitoba Press í Winnipeg 2023. Greinasöfnin byggja að verulegu leyti á rannsóknum sem voru styrktar af Rannsóknasjóði Íslands (RANNÍS).
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 12.03.2024
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesarar
-
Birna Arnbjörnsdóttirprofessor emerita
-
Höskuldur Þráinssonprofessor emeritus
-
Úlfar Bragasonprofessor emeritus
Næsti viðburður
- Umhverfisvænni byggingar
-
Dagur
- 05 nóv 2024
-
Tími
- 16:30