Saga matarins – frá steinöld til okkar tíma

Saga matarins. Frá steinöld til okkar tíma

Þriðjudaginn 10. mars kl. 16:30 mun Ólafur S. Halldórsson flytja fyrirlestur um Sögur matarins með hliðsjón af bók sem hann skrifaði.

Hér verður stiklað á stóru í sögu matarins  og Bókin Saga matarins höfð til hliðsjónar. Saga matarins er sögð í gegnum orkubyltingar mannfólksins. Fyrst var steinaldarbyltingin með virkjun eldsins og ný veiðitæki auðvelduðu öflun og vinnslu matar. Þetta olli þróunarlegum breytingum á mannslíkamanum. Næst var landbúnaðarbyltingin með vali á heppilegum afbrigðum nytjadýra og plantna auk nýjunga í framleiðslu og geymslu matvæla. Fólk fór að nýta vissar tegundir af grösum sem matvæli og brauð og bjór urðu algeng fæða. Fyrir tveimur öldum tók orkuöflun og framleiðsla matvæla stakkaskiptum með tæknibyltingum. Fjallað er um matarvenjur Íslendinga, Rómverja, evrópsks miðaldarfólks og  fæðuvenjur okkar tíma.

Ólafur Halldórsson, stundaði nám í líffræði við Háskóla Íslands og í heimspeki vísinda og trúarbragða við Exeterháskóla. Hann kenndi raungreinar í nokkra áratugi við framhaldsskóla, aðallega Verslunarskólann. Ólafur hefur samið nokkrar bækur, einn og í félagi við aðra, m.a.:

Almenn líffræði

Jörðin og stjörnurnar (meðhöfundur)

Uppruni og þróun mannsins

Efni og orka (meðhöfundur)

Kórey, vísindaskáldsaga

Frá miklahvelli til mannheima (meðhöfundur)

Saga matarins frá steinöld til okkar tíma

Spánarflakk

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

10.03.2026

Tími

16:30
SKRÁ ÞÁTTTAKANDA

Skrá á viðburð

Available Miðar: 80
The ticket is sold out. You can try another ticket or another date.
  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Fyrirlesari

Flokkar
Scroll to Top
Skip to content