Saga Bayeux refilsins

Þriðjudaginn 14. apríl kl. 16:30 kemur Reynir Tómas Geirsson til okkar í Hæðargarðinn og greinir frá  tilurð Bayeux refilsins, saumaaðferðinni, – refilsaum sem er frá tímum víkinga og hvernig refillinn hefur varðveist í gegnum aldirnar. Einnig rekur hann söguna sem myndirnar á reflinum túlka.

Refillinn er samfelld myndaröð og lýsir einni mestu orrustu sem orðið hefur á Bretlandseyjum, orustunni við Hastings árið 1066 þegar innrásarlið frá Normandí réðst inn í England og hafði sigur.  Refillinn sem er 70,34 metra langur er eitt mesta þjóðargersemi Frakka enn í dag.

Reynir Tómas Geirsson, prófessor emeritus var áður yfirlæknir á Landspítala Háskólasjúkrahúsi.

Staðsetning
Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9
14.04.2026
Útrunnið!
16:30

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content