Orkuskipti og vindmyllur
Þriðjudaginn 26. september kl. 16:30 kemur Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri á fund U3A með fyrirlestur um orkuskipti og vindmyllur.
Halla Hrund Logadóttir er með BA-gráðu í stjórnmálafræði, meistaragráðu í alþjóðasamvinnu með áherslu á hagfræði og orkumál, meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard-háskóla með áherslu á umhverfis- og orkumál. Hún starfaði frá árinu 2017 sem meðstofnandi og framkvæmdastjóri við miðstöð norðurslóða, Arctic Initiative, við Harvard-háskóla sem beinir sjónum m.a. að áhrifum loftslagsmála og kennir jafnframt á meistarastigi við sömu stofnun. Frá árinu 2019 hefur hún meðstýrt kortlagningu breytingaþátta Norðurslóða, m.a orkumála á vettvangi World Economic Forum. Halla Hrund hefur frá árinu 2015 starfað sem stofnandi og formaður Arctic Innovation Lab og starfað sem leiðbeinandi í ýmsum orkutengdum nýsköpunarhröðlum.
Hún hefur setið í stjórn Orkusjóðs frá árinu 2015 og sama ár hóf hún störf sem stundakennari við Háskólann í Reykjavík þar sem hún kennir námskeið um stefnumótun á sviði orkumála með áherslu á loftslagsmál. Halla Hrund var framkvæmdastjóri Iceland School of Energy frá árinu 2013 og til ársins 2016. Árin 2011 til 2013 var Halla Hrund forstöðumaður Alþjóðaþróunar við Háskólann í Reykjavík.
Frá júní 2021 hefur Halla Hrund gegnt embætti orkumálastjóra.
Skráum okkur á fyrirlesturinn og sjáumst þann 26. september kl. 16:30 í Hæðargarði 31.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 26.09.2023
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Halla Hrund Logadóttirorkumálastjóri
Halla Hrund Logadóttir er með BA-gráðu í stjórnmálafræði, meistaragráðu í alþjóðasamvinnu með áherslu á hagfræði og orkumál, meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu frá Harvard-háskóla með áherslu á umhverfis- og orkumál. Hún starfaði frá árinu 2017 sem meðstofnandi og framkvæmdastjóri við miðstöð norðurslóða, Arctic Initiative, við Harvard-háskóla sem beinir sjónum m.a. að áhrifum loftslagsmála og kennir jafnframt á meistarastigi við sömu stofnun.
Næsti viðburður
- Viltu tileinka þér vínlausan lífsstíl?
-
Dagur
- 07 jan 2025
-
Tími
- 16:30