Mýrar á Íslandi – Fuglasöngur, framræsla og endurheimt
Mýrar á Íslandi – Fuglasöngur, framræsla og endurheimt
Þriðjudaginn 12. maí kl. 16:30 kemur Álfur Birkir Bjarnason, vistfræðingur í votlendisteymi Lands og skógar, til okkar í Hæðargarð 31. Hann fjallar um votlendi í lífríki Íslands.
Mýrar eru gegnsósa matarkistur sem hafa átt undir högg að sækja frá vélvæðingu. Vatnið mótar jarðveg, gróður og lífsskilyrði og skapar búsvæði fyrir fjölmargar tegundir plantna, smádýra og fugla. Mýrar voru mikilvæg auðlind þar sem sótt var torf og mór til kyndingar og land nýtt til slægju og beitar en heilbrigt votlendi skapar einnig verðmæti fyrir íslenskt nútímasamfélag. Það bætir vatnsbúskap, bindur næringarefni og dregur úr áhrifum flóða og þurrka, sem styrkir bæði landbúnað og vistkerfi vatna og áa. Svo ekki sé talað um kolefnisbúskap. Í fyrirlestrinum verður farið yfir myndun og sérkenni íslenskra mýra, lífríki þeirra, vistfræði og verðmæti. Þá verður fjallað um helstu ógnir, mikilvægi endurheimtar og hvers vegna vanda þarf til verka til að bleyta landið aftur.
Álfur Birkir hefur BS-próf í líffræði frá Háskóla Íslands og tölvunarstærðfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem landvörður víða um land og komið að gerð sýninga fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Álfur Birkir starfar nú við vöktun votlendis og miðlun hjá Landi og skógi.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 12.05.2026
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Álfur Birkir Bjarnasonvistfræðingur
Næsti viðburður
- Mr. Skallagrímsson – menningarhópur heimsækir Landnámssetur
-
Dagur
- 17 maí 2026
-
Tími
- 14:30