Mr. Skallagrímsson – menningarhópur heimsækir Landnámssetur
Frá Menningarhópi
Síðasti fundur Menningarhóps á þessum vetri verður haldinn í Borgarnesi sunnudaginn 17. maí á Landnámssetrinu. Við ætlum að heyra og sjá Benedikt Erlingsson segja okkur Egilssögu á sinn hátt, í sýningu sem hann kallar Mr.Skallagrímsson.
Sýningin hefst klukkan 16.00 og við leggjum af stað með rútu frá Hæðargarði kl.14.30. Eftir sýningu borðum við kvöldmat á Landnámssetrinu og ræðum upplifun okkar af sýningunni ofl.
Áætluð heimkoma er 20.30 að Hæðargarði.
Verð fyrir þennan viðburð er 10.500 krónur.
Vinsamlegast bókið og greiðið sem fyrst, því við þurfum að láta vita um fjölda með góðum fyrirvara á Landnámssetrinu og rútufyrirtækinu.
Reikningur U3A: 0301-26-011864
Kt:430412-0430
Með kærri kveðju frá stýrihópi,
Ingibjörg Ásgeirsdóttir
Staðsetning
Dagur
- 17.05.2026
Tími
- 14:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Næsti viðburður
- Rímurnar af Mábil sterku
-
Dagur
- 19 maí 2026
-
Tími
- 16:30