Menningarhópur heimsækir sýningu í Eddu, húsi íslenskunnar

Frá Menningarhópi
Miðvikudaginn 15. janúar 2025 kl. 14:00 heimsækir menningarhópur sýninguna Heimur í orðum í Eddu, húsi íslenskunnar. Þar fáum við leiðsögn um sýninguna þar sem sjá má fjölmörg íslensk handrit sem geyma ómetanlegan menningararf okkar. Þar eru fornar sögur og fræg kvæði en einnig ýmsir aðrir textar sem spegla hugmyndir fyrri kynslóða um líf sitt og samfélag. Á sýningunni er kappkostað að opna þennan fjölbreytta heim handritanna fyrir gestum. Meðal handrita á sýningunni eru frægustu íslensku miðaldahandritin, Konungsbók eddukvæða og Flateyjarbók.
Eftir sýninguna tyllum við okkur á kaffihús í Eddu og njótum samveru og spjalls yfir kaffibolla. Á kaffihúsinu greiðir hver fyrir sig.
Greiðsla fyrir aðgang að sýningunni er 1200 kr.
Vinsamlegast skráið ykkur og greiðið sem fyrst. Munið að skrá hvern einstakling fyrir sig.
Reikningur U3A: 0301-26-011864
Kt: 430412-0430
Með kveðju frá stýrihópi,
Birna Sigurjónsdóttir

Staðsetning
Dagur
- 15.01.2025
- Expired!
Tími
- 14:00
The event is finished.
Næsti viðburður
- Gefa af sér, vaxa saman: Jákvæð áhrif sjálfboðaliðastarfs á einstaklinga og samfélög.
-
Dagur
- 25 feb 2025
-
Tími
- 16:30