Menningarhópur fer í bíó

Frá Menningarhópi

Fimmtudaginn 12. febrúar kl. 16:40 fer menningarhópur í Smárabíó að sjá kvikmyndina Hamnet, Kvikmyndin byggir  á hinni margverðlaunuðu skáldsögu eftir Maggie O’Farrell sem segir frá sambandi leikskáldsins William Shakespeare, sem Paul Mescal túlkar, og eiginkonu hans Agnesar, sem Jessie Buckley leikur. Sagt er frá harmleiknum sem verður til þess að Shakespeare skrifar eitt sitt frægasta leikverk, Hamlet, eftir dauða sonar síns, Hamnet. Kvikmyndin er tilnefnD til 8 Óskarsverðlauna.

Eftir sýninguna förum við og fáum okkur að borða á matstofunni Garðinum í Smáralind. Þar velur hver fyrir sig á hinum ýmsu veitingastöðum en við höfum bókað aflokað svæði svo við getum borðað saman og spjallað um myndina  ofl.

Þetta svæði er fyrir innan Djúsi Sushi staðinn í Garðinum.

Við þurfum að láta vita hvað við verðum mörg í mat svo við reiknum bara með að þeir sem skrá sig í bíó ætli líka að borða með hópnum.

Miðaverð til okkar eru 2.091  króna sem greiðist inn á reikning U3A.

Þau sem hafa áhuga á þessu skrá sig sem fyrst og greiða.

Reikningur U3A: 0301-26-011864
Kt: 430412-0430

Með bestu kveðju frá stýrihópi

Smárabíó

Staðsetning

Smárabíó
Smáralind

Dagur

12.02.2026

Tími

16:40
SKRÁ ÞÁTTTAKANDA

Skrá á viðburð

Available Miðar: 6
The ticket is sold out. You can try another ticket or another date.
  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content