Málstofa umhverfishóps: Umhverfi og heilsa
Þriðjudaginn 13. febrúar 2024 kl. 16:30 verður haldin í Hæðargarði 31 málstofa um umhverfi og heilsu að frumkvæði umhverfishóps U3A Reykjavík.
Flutt verða tvö erindi, Svava S. Steinarsdóttir heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar fjallar um loftgæði í Reykjavík. Síðara erindið flytur Þórarinn Gíslason lungnalæknir og prófessor emeritus við Læknadeild Háskóla Íslands. Hann nefnir erindi sitt: Umhverfi og heilsa – aðkoma lungnalæknis í aldarþriðjung.
Svava Svanborg Steinarsdóttir er heilbrigðisfulltrúi og verkefnastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, MSc. í líffræði og MSc. í opinberri stjórnsýslu. Svava hefur unnið við heilbrigðiseftirlit í 24 ár, þar af síðustu 10 ár í einingu vöktunar sem m.a. vaktar og verndar loftgæði, vatnsgæði og gæði strandsjávar í Reykjavík. Meðal annarra verkefna er eftirlit með hávaða, jarðvegsmengun og fráveitu, auk fjölbreyttra verkefna á sviði stjórnsýslu.
Þórarinn Gíslason er lungnalæknir og prófessor emeritus við Læknadeild Háskóla Íslands, Þórarinn hefur víðtæka, áratuga reynslu sem lungnalæknir og mikilsvirtur vísindamaður. Hann hefur m.a. tekið virkan þátt í fjölda innlendra og fjölþjóðlegra rannsóknaverkefna á sínu sviði.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 13.02.2024
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesarar
-
Svava S. Steinarsdóttirheilbrigðisfulltrúi
Svava Svanborg Steinarsdóttir heilbrigðisfulltrúi og verkefnastjóri hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, MSc. í líffræði og MSc. í opinberri stjórnsýslu. Svava hefur unnið við heilbrigðiseftirlit í 24 ár, þar af síðustu 10 ár í einingu vöktunar sem m.a. vaktar og verndar loftgæði, vatnsgæði og gæði strandsjávar í Reykjavík. Meðal annarra verkefna er eftirlit með hávaða, jarðvegsmengun og fráveitu, auk fjölbreyttra verkefna á sviði stjórnsýslu.
-
Þórarinn Gíslasonlungnalæknir og prófessor emeritus
Þórarinn Gíslason er lungnalæknir og prófessor emeritus við Háskóla Íslands, hann hefur um þriggja áratuga skeið stundað lungnalækningar og rannsóknir á kæfisvefni og langvinnri lungnaþembu.
Næsti viðburður
- Viltu tileinka þér vínlausan lífsstíl?
-
Dagur
- 07 jan 2025
-
Tími
- 16:30