Lína langsokkur – uppruni og saga
Lína langsokkur – uppruni og saga
Þriðjudaginn 17. mars kl. 16:30 kemur Sigríður Jónsdóttir til okkar í Hæðargarð með fyrirlestur um hvernig Lína Langsokkur varð órjúfanlegur hluti af uppeldi íslenskra barna.
Astrid Lindgren og Lína Langsokkur eiga sér langa sögu á Íslandi, lengri en mörg gætu haldið. Þessi fjöruga og ákveðna stúlka birtist fyrst í bók á Íslandi árið 1949. En Lína birtist fyrst á prenti hér á landi nokkrum árum áður þá undir öðru nafni og varð fljótlega fastur liður í menningaruppeldi barna, áhrifa sem gætir enn í dag.
Í fyrirlestrinum segir Sigríður stuttlega frá ævi Astridar, uppruna Línu og hvernig íslensk börn kynntust henni um miðbik 20. aldarinnar, þar sem lestur, þrjú-bíó og leikhúsið léku stór hlutverk.
Sigríður Jónsdóttir er sérfræðingur á Leikminjasafni, leiklistarskjalasafn á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni (Þjóðarbókhlöðu), og starfar sem leikhúsgagnrýnandi á Heimildinni.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 17.03.2026
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Sigríður Jónsdóttirsérfræðingur á Leikminjasafni