Leit að lífmerkjum í heila fyrir Parkinson-plús sjúkdóma

Þriðjudaginn 27. september kl. 16:30 kemur Dr. Lotta María Ellingsen til okkar í Hæðargarð 31 Fyrirlestur  hennar mun fjalla um nýjar myndgreiningaraðferðir sem nota gervigreind til að leita að breytingum á heila sem tengjast Parkinson-plús sjúkdómum.

Dr. Lotta María Ellingsen er dósent og deildarforseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsnámi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Johns Hopkins háskólanum í Baltimore í Bandaríkjunum þar sem hún sérhæfði sig í læknisfræðilegri myndgreiningu. Rannsóknir hennar við Háskóla Íslands snúa að þróun nýrra myndgreiningaraðferða fyrir segulómmyndir af heila til þess að leita kerfisbundið að breytileika í heilanum tengdum heilasjúkdómum. Lotta hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2020 fyrir rannsóknir sínar.

Dagur

27.09.2022
Expired!

Tími

16:30

The event is finished.

Fyrirlesari

  • Lotta María Ellingsen
    Lotta María Ellingsen
    Dr. Lotta María Ellingsen er dósent og deildarforseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar Háskóla Íslands.

    Dr. Lotta María Ellingsen er dósent og deildarforseti Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsnámi í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Johns Hopkins háskólanum í Baltimore í Bandaríkjunum þar sem hún sérhæfði sig í læknisfræðilegri myndgreiningu. Rannsóknir hennar við Háskóla Íslands snúa að þróun nýrra myndgreiningaraðferða fyrir segulómmyndir af heila til þess að leita kerfisbundið að breytileika í heilanum tengdum heilasjúkdómum. Lotta hlaut Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2020 fyrir rannsóknir sínar.

Scroll to Top
Skip to content