Keltnesk áhrif á Íslandi

Þorvaldur Friðriksson, sagnfræðingur flytur erindi um keltnesk áhrif á Íslandi fyrir U3A Reykjavík þriðjudaginn 8. nóvember kl. 16:30.
Keltnesk áhrif í íslenskri menningu eru mun meiri en margir halda. Þetta birtist í meðal annars í örnefnum og tungumálinu. Mörg grundvallarorð í íslensku þekkjast ekki í öðrum norrænum tungumálum. Formæður Íslendinga ólust upp á Írlandi, í Skotlandi og á Suðureyjum og margt bendir til að meirihluti landnámskvenna hafi komið þaðan. Þetta er meðal þess sem fram kemur í spjalli Þorvaldar Friðrikssonar sem sendi nýverið frá sér bókina ,,Keltar, áhrif á íslenska tungu og menningu“.
Þorvaldur lærði bókmenntir og sagnfræði við Háskóla Íslands og fornleifafræði við háskólana í Stokkhólmi og Gautaborg. Lokaritgerð hans fjallaði um keltneska húsagerð á Íslandi. Þorvaldur starfaði sem fréttamaður í erlendum fréttum á fréttastofu ríkisútvarpsins um langt árabil.

Staðsetning
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031Dagur
- 08.11.2022
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Þorvaldur Friðrikssonsagnfræðingur
Þorvaldur hefur kannað keltnesk áhrif í íslenskri menningu um keltnesk orð í íslensku og keltnesk örnefni á Íslandi og flutt um það fjölda fyrirlestra sem hvarvetna hafa vakið mikla athygli.
Næsti viðburður
- Sögulegar styttur í miðborginni – Laugardagsganga 23. september kl. 11:00
-
Dagur
- 23 sep 2023
-
Tími
- 11:00 - 12:30