Jólafundur U3A Reykjavík 8. desember
![Jólafundur 2022](https://u3a.is/wp-content/uploads/2022/11/pexels-pixabay-278508-1-768x403.jpg)
Jólafundurinn verður haldinn í sal á veitingastaðnum Nauthól fimmtudaginn 8. desember kl. 15:00.
Arkitektarnir Hjördís Sigurgísladóttir og Dennis Davíð Jóhannesson koma á fundinn og kynna bók sína Straumar frá Bretlandseyjum – Rætur íslenskrar byggingarlistar. Bókin er afrakstur sögulegs rannsóknarverkefnis Hjördísar og Dennis. Hún fjallar um hvernig áhrif frá Bretlandseyjum hafa mótað íslenska byggingarsögu frá upphafi byggðar og fram á daginn í dag.
Samkvæmt venju á jólafundi fáum við kaffi og meðlæti og það verður tími fyrir samveru og spjall.
Aðgangseyrir er kr.3.500.- sem greiðist inn á reikning U3A Reykjavík,
kt: 430412-0430
reikn: 0301-26-011864.
Vinsamlegast merkið greiðsluna með kennitölu greiðanda.
með kveðju frá stjórn
U3A Reykjavík
Dagur
- 08.12.2022
- Expired!
The event is finished.
Fyrirlesarar
-
Dennis Davíð Jóhannessonarkitekt
-
Hjördís Sigurgísladóttirarkitekt
Næsti viðburður
- Sumarkveðja frá stjórn U3A Reykjavík
-
Dagur
- 15 ágú 2024