Íslenski sjávarklasinn
Þriðjudaginn 28. janúar kl. 16:30 mun Vilhjálmur Jens Árnason flytja fyrirlestur um Íslenska sjávarklasann ehf. Íslenski sjávarklasinn er fyrirtæki og viðskiptahraðall sem á víðtækt samstarf við fjölda nýsköpunarfyrirtækja í bláa hagkerfinu; útvegar þeim aðstöðu, styrkir tengslanet þeirra, miðlar þekkingu og fjárfestir í sprotum. Eitt helsta markmið Sjávarklasans er að stuðla að 100% nýtingu gegnum verkefnið 100% fiskur. Samstarf íslenskra fyrirtækja, tengdum sjávarútvegi, frumkvöðla og rannsóknarstofnanna um nýsköpun og þróun á vörum úr hausum, beinum, innyflum og roði hafa skapað mikil verðmæti, en í dag nýtir bláa hagkerfið á Íslandi allt að 90% af veiddum fiski. Til samanburðar er meðalnýting þorsks í ýmsum nágrannalöndum okkar rétt yfir 50%, þetta þýðir að um helmingur af þyngd hvers fisks fer til spillis í framleiðsluferlinu. Markmið verkefnisins um 100% fisk er að stuðla að enn frekari þróun í nýtingu, miðla þekkingu og auka samstarf milli sjávarútvegsfyrirtækja, stofnana, frumkvöðla og ungs fólks hér á landi og erlendis til að auka verðmæti afurða úr hafi og vötnum.
Vilhjálmur Jens hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík, BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og er með MSc gráðu í heimspeki frá Edinborgarháskóla. Vilhjálmur tók þátt í undirbúningi að stofnun Sjávarklasans. Í dag starfar Vilhjálmur sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi hjá Íslenska sjávarklasanum.
- Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
- Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
- Website https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9
- 28.01.2025
- Útrunnið!
- 16:30
Fyrirlesari
-
Vilhjálmur Jens ÁrnasonráðgjafiVilhjálmur Jens hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Reykjavík, BA gráðu í heimspeki frá Háskóla Íslands og er með MSc gráðu í heimspeki frá Edinborgarháskóla.
Næsti viðburður
- Fundur bókmenntahóps 11. nóvember 2026
-
Dagur
- 11 nóv 2026
-
Tími
- 19:30