Íran í fortíð og nútíð
Íran í fortíð og nútíð
Þriðjudaginn 5. maí kl. 16:30 kemur Kjartan Orri Þórsson til okkar í Hæðargarð 31 og fjallar um Íran. Í erindinu verður stiklað á stóru um langa sögu Írans. Farið verður yfir sérstöðu landsins, menningu og sögu. Einnig verður greint frá nútímavæðingartilraunum 20.aldarinnar, afskiptum vesturlanda í Íran og samskiptum landsins við umheiminn. Þá verður sérstaklega farið yfir fall keisaraveldisins og stofnun Íslamska lýðveldisins.
Ofantalið verður síðan sett í samhengi við þau átök og aðstæður sem hafa haft í för með sér það ástand sem íranskur almenningur þarf nú að búa við og hvað það geti þýtt fyrir framtíðina á svæðinu.
Kjartan Orri er með BA og MA gráðu frá Kaupmannahafnarháskóla í Írönskum fræðum. Hann nam einnig við Ferdowsi háskóla í Mashhad í Íran og sótt námskeið í Teheran.
Hann hefur kennt námskeið um íranska sögu og menningu við Háskóla Íslands auk þess sem hann kemur reglulega fram í íslenskum fjölmiðlum til þess að ræða málefni Írans.
Staðsetning
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9Dagur
- 05.05.2026
Tími
- 16:30
-
00
dagar
-
00
klukkustundir
-
00
mínútur
-
00
sekúndur
Fyrirlesari
-
Kjartan Orri Þórssonmið-austurlandafræðingur
Næsti viðburður
- Mýrar á Íslandi – Fuglasöngur, framræsla og endurheimt
-
Dagur
- 12 maí 2026
-
Tími
- 16:30