Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland. Viðhorfasaga í þúsund ár

Þriðjudaginn 2. mars fjallar Sumarliði Ísleifsson um viðhorf til Íslands og Grænlands frá öndverðu til samtímans. Spurt verður: Af hverju einkenndust þessi viðhorf, var álit umheimsins á eyjunum tveimur svipað eða ólíkt? Hvað var það einkum sem mótaði skoðanir umheimsins á Íslandi og Grænlandi á umliðnum þúsund árum. Í erindi sínu fjallar Sumarliði, sem er höfundar bókarinnar Í fjarska norðursins. Ísland og Grænland. Viðhorfasaga í þúsund ár um um þær skoðanir sem birtust í ferðabókum og öðru efni um eyjarnar tvær, greinir þær og skýrir.

Sumarliði er lektor í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands. Hann hefur lengi stundað rannsóknir á viðhorfum til Íslands og Grænlands. Hann hefur einnig rannsakað sögu atvinnulífs og verkalýðshreyfingar á 19. og 20. öld og sögu stjórnsýslu hérlendis. Eftir hann liggur fjöldi bóka, greina, heimildamynda og sýninga.

 

 

 

Vefstreymi

Staðsetning

Vefstreymi

Dagur

02.03.2021
Expired!

Tími

16:30

The event is finished.

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content