Heilsustofnun NLFÍ, starf, áherslur og nýjungar
![](https://u3a.is/wp-content/uploads/2022/01/119914247_3128327093944883_8876741019016555516_n-768x512.jpg)
Þriðjudaginn 1. febrúar kl. 16.30 flytur Þórir Haraldsson, forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ erindi um starf stofnunarinnar, helstu áherslur og kynnir nýjungar í starfseminni. Náttúrulækningafélag Íslands hefur um árabil leitað leiða til að bæta húsakost Heilsustofnunar og skjóta styrkari stoðum undir rekstur hennar. Bygging íbúða á landi Heilsustofnunar fyrir einstaklinga sem vilja njóta öryggis og þjónustu Heilsustofnunar er einstakt tækifæri fyrir þá sem setja góða heilsu og vellíðan í öndvegi og mun einnig efla starfsemi Heilsustofnunar (sbr. texta á lindarbrun.is).
Þórir Haraldsson er lögfræðingur frá Háskóla Íslands að mennt og hefur víðtæka þekkingu af heilbrigðisþjónustu og fyrirtækjarekstri. Hann hefur á undanförnum árum starfað hjá Íslenskri erfðagreiningu sem lögmaður og framkvæmdastjóri rekstrar.
Hann var aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra 1995 – 2001 og hefur einnig setið í ýmsum stjórnum og nefndum þar á meðal í stjórn Heilsustofnunar um árabil.
![Vefstreymi](https://u3a.is/wp-content/uploads/2020/07/Vefvarp-1200x773-1.jpg)
Staðsetning
Dagur
- 01.02.2022
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesari
-
Þórir HaraldssonForstjóri Heilsustofnanar NLFÍ
Næsti viðburður
- Sumarkveðja frá stjórn U3A Reykjavík
-
Dagur
- 15 ágú 2024