Námskeið: Gyðingar, siðir, saga og menning. Annar fundur

Þriðjudaginn 30. nóvember kl. 16:30 er annar fundur námskeiðsins: Gyðingar; saga, siðir og menning, sem er haldið af Jóni Björnssyni og Þorleifi Friðrikssyni. Á þessum fundi er farið yfir efnið: Biblían. Gyðingdómur, trú og helgisiðir, Matarhefðir
Athugið að þátttakendur þurfa að skrá sig á hvern fund námskeiðsins. Fyrirlestrunum er streymt og þeir opnir í viku eftir flutning.
Auk þess að vera almenn fræðsla um Gyðinga og sögu þeirra, er gert ráð fyrir að á námskeiðinu verði undirbúin ferð um Gyðingaslóðir í (Mið)Evrópu vor/sumar/haust 2022. Námskeiðið er í fjórum hlutum, fyrirlestrum sem eru ca. 2 klst hver. Fimmti hlutinn kann að bætast við og snýst þá um skipulagningu á ferð. Þátttakendur skrá sig á hvern fyrirlestur fyrir sig. Þeim verður einnig streymt eins og venja er með fyrirlestra á vegum U3A Reykjavík
Námskeiðið er í tvö skipti í nóvember, fyrst 25. nóvember og svo 30. nóvember. Síðari hluti námskeiðsins verður tvö til þrjú skipti seinni hluta janúar 2022. Dagsetningar í janúar verða auglýstar með góðum fyrirvara.
Efnisþættir námskeiðsins eru þessir (með fyrirvara):
I. Inngangur. Hver er Gyðingur. Saga Gyðinga frá upphafi til 70 e. Kr.
II. Biblían. Gyðingdómur, trú og helgisiðir, Matarhefðir
III. Sefardar á Spáni. Askenasar í Mið- og Austur-Evrópu. Menning, listir og bókmenntir. Ferð/ áfangastaðir á Gyðingaslóðum.
IV. Antisemitismi, ofsóknir og flótti. Zíonismi. Ísrael. Gyðingar á Íslandi
V. Ferð: tími, áfangastaðir.

Staðsetning
Website
https://ja.is/?q=h%C3%A6%C3%B0argar%C3%B0ur%2031Dagur
- 30.11.2021
- Expired!
Tími
- 16:30
The event is finished.
Fyrirlesarar
-
Jón Björnssonsálfræðingur og rithöfundur.
-
Þorleifur Friðrikssonsagnfræðingur
Þorleifur Friðriksson hefur lungan úr starfsævi sinni sýslað við sagnfræði og kennslu auk þess sem hann hefur um árabil rekið Söguferðir ehf, ferðaskrifstofu fyrir forvitna.
Næsti viðburður
- Ullarævintýri – vorferð U3A Reykjavík 7. júní
-
Dagur
- 07 jún 2023
Warning: Undefined array key "display_credit_url" in /var/www/virtual/u3a.is/htdocs/wp-content/plugins/modern-events-calendar/app/libraries/skins.php on line 2352