Gönguleið í náttúrunni í Elliðaárdal Laugardagsganga 30. október

Næsta Laugardagsganga U3A Reykjavík verður 30. október, kl.11:00 sem að þessu sinni er ganga í náttúrunni í Elliðaárdal.

Leiðsögumaður er Birgir Jónsson.

Upphaf göngunnar er við Elliðaárvirkjun í Elliðaárdal.

Á göngunni um náttúruna í  Elliðaárdal verður meðal annars skoðuð hraunmyndun, „Indjánagilið“, fylgt gömlu þjóðleiðinni til Reykjavíkur og komið við í Árbæjarsafni.

Þessi síðasta laugardagsganga haustsins hefst við Elliðaárvirkjun í Elliðaárdal og henni lýkur rétt fyrir neðan Reiðskarð við heimili og vinnustofu eins þekktasta listmálara landsins af yngri kynslóðinni, Georgs Guðna heitins. Gangan er um 4,8 km að lengd og miðlungs erfið. Gott bílastæði er við upphafsreit og strætó nr. 24 stoppar við Árbæjarsafn. Þátttakendur geta aðeins verið 25 talsins og er því nauðsynlegt að skrá sig í gönguna.

Gangan er ein af fimm íslenskum leiðum sem voru skráðar með Wikiloc appinu í alþjóðlega HeiM verkefninu sem U3A Reykjavík tók þátt í. Hönnuðir leiðar um náttúruna í Elliðaárdal eru Birgir Jónsson og Dagrún Þórðardóttir. Nánari upplýsingar um leiðina er að finna á þessari slóð 

Elliðaárdalur er vinsælasta útivistarsvæði Reykjavíkur og stærsta græna svæðið í borginni. Dalurinn býður upp á fjölbreytt umhverfi hvað varðar landslag, jarðfræði, fugla, fisk og gróður, en Elliðaárnar eru þó þungamiðja svæðisins. Í dalinn leitar fjöldi fólks allt árið, sérstaklega úr hverfunum í nágrenninu. Í norðurjaðri dalsins er Árbæjarsafn, sem er byggðasafn Reykjavíkur, staðsett á býlinu Árbæ, þar sem var rekin gisti og veitingaþjónusta um aldir, fyrir bændur, sem voru að reka kvikfé til Reykjavíkur til slátrunar, ásamt því að selja aðrar afurðir.

Dagur

30.10.2021
Expired!

Tími

11:00 - 12:00
Uppbókað!

The event is finished.

Fyrirlesari

  • Birgir Jónsson
    Birgir Jónsson
    Jarðfræðingur/jarðverkfræðingur

    Birgir Jónsson er jarðfræðingur og jarðverkfræðingur að mennt. Er nú á eftirlaumum og starfar sem leiðsögumaður. Var áður dósent við Umhverfis og byggingarverkfræðideild Háskóla íslands og starfaði í 30 ár við Orkustofnun,

Næsti viðburður

Scroll to Top
Skip to content