Fuglar og fuglaskoðun

Fuglar og fuglastaðir

Daniel Bergmann fuglaljósmyndari er fyrirlesari í Hæðargarði 31 þriðjudaginn 21. apríl kl. 16:30.  Daníel hefur lagt heilmikið af mörkum til kynna íslenska fugla og íslenska náttúru. Hann er með þekktari fuglaljósmyndurum landsins og hefur komið að útgáfu fjölda rita sem eru prýddar myndum sem hann hefur tekið.

Í bókinni Fuglar og fuglastaðir er farinn réttsælis hringur um landið og fjallað um landsvæði eða afmarkaða staði með tilliti til fuglaskoðunar. Í upphafi bókarinnar er umfjöllun um fuglaskoðun sem áhugamál, fuglaljósmyndun og sögu hennar á Íslandi, þátttöku almennings í fuglatengdum vísindum og fjallað um fuglaskoðun á mismunandi árstíðum. Á víð og dreif í bókinni er síðan umfjöllun um ákveðnar fuglategundir eða hópa fugla og er þar komið inn á vistfræði og líffræði, stöðu fuglastofna og vernd þeirra.

Bókin var tilnefnd til Hagþenkis- viðurkenningar nú í ár og var kynnt sem „frumleg nálgun þar sem fuglaskoðun á einstaka stöðum og landssvæðum er kynnt og fjallað um fuglaljósmyndun, framlag áhugamanna og fleira. Einstakar ljósmyndir og vönduð kort“.

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31

Staðsetning

Félagsmiðstöðin, Hæðargarði 31
Hæðargarður 31, 108 Reykjavík
Website
https://maps.app.goo.gl/hAxuemMotw14hA5H9

Dagur

21.04.2026

Tími

16:30
SKRÁ ÞÁTTTAKANDA

Skrá á viðburð

Available Miðar: 80
The ticket is sold out. You can try another ticket or another date.
  • 00

    dagar

  • 00

    klukkustundir

  • 00

    mínútur

  • 00

    sekúndur

Fyrirlesari

Næsti viðburður

Flokkar
Scroll to Top
Skip to content